Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Síða 71
Byijaði sextán ára
hjá Rafver
Rafverktaka- og innflutn-
ingsfyrirtækið Rafver hf.
var stofnað í maí 1956 og hef-
ur því starfað í 41 ár. Ágúst
Einarsson framkvæmdastjóri
Rafvers hf. byrjaði hjá fyrirtæk-
inu aðeins sextán ára gamall
en keypti sig svo inn í það tví-
tugur að aldri. Rafver sérhæfir
sig í innflutningi á hvers kyns
tækjum til notkunar í iðnaði,
jafnt í sjávarútvegi sem og
málm-, raf-, prent- og mat-
vælaiðnaði. Kröfur um vist-
vænt umhverfi, betri nýtingu
orku og hagkvæmni í rekstri
eru alltaf að aukast og hefur
fyrirtækið lagt sig eftir því að
vera leiðandi á því sviði til þess
að mæta þessum kröfum. Fyr-
irtækið byrjaði sem verktaka-
fyrirtæki í raflögnum og hönn-
un, en bætti síðan við sig inn-
flutningi á verkfærum og tækj-
um fyrir iðnaðinn. Hjá fyrirtæk-
inu starfa nú 16 starfsmenn í
700 fermetra húsnæði í Skeif-
unni 3.
Ágúst segir að fyrirtækið
flytji inn margar gerðir tækja
sem hafa áunnið sér traust og
ánægju viðskiptavina þess í
gegnum árin. „Þau fyrirtæki
sem við erum með umboð fyrir
eru meðal annars ULTRAFILT-
ER INTERNATIONAL sem
framleiðir hreinsibúnað fyrir
loftþrýstikerfi, KÁRCHER há-
þrýstidælur og vatnssugur,
SORTIMO lager- og varahluta-
hillukerfi, SVEDAUVWEDA
PUMP og ROBOT brunndælur
og FEIN rafmagnshandverk-
færi, bora og slípirokka og svo
mætti lengi telja.“ Ágúst segir
að FEIN sé elsti framleiðandi
rafmagnshandverkfæra í heim-
inum, hins vegar hafi FEIN ein-
beitt sér að iðnaðarverkfærum.
Það sem er nýjast í innflutn-
ingi Rafvers og getur komið
sjávarútveginum til góða er
hreinsibúnaðurinn frá Ultrafilter
fyrir loftþrýstikerfi. Ágúst segir
að það vilji alltaf koma óhrein-
indi í slík loftkerfi, bæði olía,
ryk og vatn. „Þessi búnaður
sem við erum með býður upp
á heildarlausnir fyrir loftþrýsti-
kerfi. Það er byggt upp á síum
og mælum sem komið er upp
og fylgjast með aðskotaefnum
í loftinu. Það getur verið mjög
mikið atriði í matvælaiðnaði að
loftið sé eins hreint og kostur
er. Þess vegna getum við
einnig boðið viðskiptavinum
okkar síur sem sjá um að sótt-
hreinsa loftið í kerfunum. Eftir
hreinsunina taka við sérstakar
skiljur sem skilja út vatn, olíu
og ryk og setja þau efni í sér-
stök ílát. Óhreinindi vatnsins
eru því innan þeirra marka
sem kröfur eru gerðar um
samkvæmt nýjustu stöðlum og
óhætt að losa það beint í nið-
urfall.“
Ágúst segir að þessi búnað-
ur sé því mjög umhverfisvænn
og taki mið af þeim kröfum
sem uppi eru um auknar
mengunarvarnir í iðnaði. Hann
segir að búnaðurinn sé sjálf-
virkur og þar af leiðandi orku-
sparandi, vegna þess að ekki
þurfi að tæma loftþrýstikerfin
til þess að hreinsa þau eða
opna fyrir loka til að tappa af
vatni og olíum. „Við vorum að
setja upp svona búnað við
prentvél Morgunblaðsins.
Einnig er Bakkavör hf að
kaupa af okkur slíkan búnað,
en það fyrirtæki sýður niður
hrogn. Þannig að alls staðar
þar sem viðamikil loftþrýsti-
kerfi eru hluti af vélbúnaði nýt-
ist þetta til sparnaðar og þrifa-
legra umhverfis. Loft er dýr
orkugjafi þannig að allur bún-
aður sem bætt getur nýtingu
ioftþrýstikerfa er af hinu góða.
Ég myndi áætla að hér heima
myndi sjálfvirki aftöppunar-
búnaðurinn borga sig upp á
rúmlega einu ári. Fyrir utan
þægindin sem fylgir slíkum
sjálfvirkum búnaði, að þurfa
ekki að vera alltaf að tappa af
kerfinu. Á hverju ári geta farið
mörg tonn af óhreinu vatni í
gegnum svona kerfi.“
Siðan 1984, þegar Rafver
hóf innflutning á Kárcherdæl-
um og ryksugum hefur fyrir-
tækið verið með mjög stóra
markaðshlutdeild af þeim vör-
um. Sjávarútvegsfyrirtæki hafa
verið mjög stórir viðskiptavinir
fyrirtækisins en einnig fyrirtæki
í iðnaði, þar sem nauðsynlegt
er að halda uppi góðum þrifn-
aði.
Ágúst segir að það sé eitt
að selja og annað að þjónusta
viðskiptavininn. „Við hjá Rafver
höfum lagt metnað okkar í að
vera með góðan lager af vara-
hlutum og aukahlutum. Það er
lág bilanatíðni í þessum tækj-
um en hlutir geta alltaf bilað og
við leggjum metnað okkar í að
veita sem besta þjónustu og
fylgjast vel með nýjungum.
Þess vegna er ýmis konar ráð-
gjöf einnig stór þáttur í starfi
fyrirtækisins. Við reynum að
fylgjast með þróuninni á mark-
aðnum og erum alltaf að leita
að einhverju nýju.“ ■
Sjómannablaðið Víkingur
71