Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Síða 74

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Síða 74
Á.M. Sigurðsson í Hafnarfirði Það má alltaf gera gott betra Feðgarnir Árni Matthías Sig- urðsson og Sigurður Örn Árnason eru stofnendur og eigendurÁ.M. Sigurðsson í Hafnarfirði sem hefur framleitt fiskvinnsluvélar undir heitinu MESA. Fyrirtækið hefur starfað á tólfta ár og hafa umsvif þess aukist og dafnað jafnt og þétt síðan. Jafnframt fram- leiðslu MESA fisk- vinnsluvélanna hefur fyr- irtækið einnig verið að hasla sér völl með inn- flutningi á vogum og vigtarkerfum frá fyrir- tækinu NESCO á Englandi til notkunar í fiskvinnslu og hvers kyns matvælaiðnaði. Auk þess hefur verið hönnuð fær- anleg fiskþurrkunarsstöð hjá fyrirtækinu og er ein slík stöð nú I smíðum fyrir Færeyinga. Nafnið MESA finnst mér at- hyglisvert og spyr hvort að það hafi tekið langan tíma að finna það út. Það hljómi jafn- vel útlenskuiega. Árni segir að nafnið hafi komið til út frá upp- hafsstöfum nafna hans sjálfs, eiginkonu sinnar og barna, síðan hafi þau bara raðað stöf- unum fram og til baka þar til MESA hafi verið lendingin. Hann bætir einnig við að nafn- ið sé þjált í munni og útlend- ingar eigi ekki í neinum vand- ræðum með að bera það fram og það hljóti alltaf að teljast kostur. Fyrirtækið hóf rekstur í 35 fermetra húsnæði fyrir rúmlega ellefu árum en nú er það í 400 fermetra plássi, þar sem fyrir- tækið hefur verið síðast liðin tvö ár. “Eftir því sem umsvifin hafa aukist hefur húsnæðið stækkað,” segirÁrni. “Við stefnum meðal annars að því að geta verið með sýningaraðstöðu á fram- leiðslu okkar og þeim vörum sem við höfum umboð fyrir. Útflutning- urinn hefur alltaf verið að aukast líka og við gerum ráð fyrir að um 65 % - 70 % af framleiðslu okk- ar fari á erlenda markaði á þessu ári. Framleiðsla okkar hefur farið víða um heim, en mest er flutt til Norðurland- anna, Evrópu og Kanada.” Árni segir að hann sé nýlega byrjaður að flytja inn vogir. Það er hægt að tengja þessar vogir tölvukerfum fyrirtækj- anna, sem flýti allri vinnu og auki hagræði. Hann segir að tölvurnar og kerfin sjálf komi uppsett til landsins, hins vegar geti þeir smíðað öll færibönd að og frá vogunum. Þannig henta vogirnar vel þeirri fram- leiðslu sem fyrirtækið er í. „Það er hins vegar mikil sam- keppni I þessum vigtarbransa. En við erum með góða vöru og höfum góð tengsl við markað- inn, þannig að ég tel okkur standa nokkuð vel að vígi. Við getum boðið upp á innvigtun- arkerfi og flokkara fyrir hvers kyns vinnslu. Þetta er mjög breið lína sem við verðum með sem hentar bæði til sjós og iands.” Árni segir að þær vélar sem smíðaðar séu hjá fyrirtækinu miði að því að auka nýtingu sjávarafla og auka verðmæti þess sem komið er með að landi. “Krafa dagsins er sú að eftir því sem veiðar verða meira bundnar kvóta og verndunarsjónarmið ráða ferð- 74 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.