Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Síða 17
Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins,
er búinn að eiga marga fundi vegna kjaramálanna, bæði með sjómönn-
um og eins hjá sáttasemjara. Hann lýtur yfir samningaferlið og sér að
margt megi betur fara
Ætluðu sér ekki
að missa tökin
á kvótbraskinu
„Mín fyrstu viðbrögð eru þau að miðlun-
artillagan ein og sér dugar okkur ekki. En
sem hluti málsins, það er þegar lagafrum-
varpapakkinn um kvótaþing, veiðiskyldu og
verðlagsstofu fiskverðs þar sem tekið verður á
því sem er óviðunandi, ólöglegt og afbrigði-
Guðjón i Karphúsinu.
Það er slegið á létta strengi á milli
ÁTAKA.
legt, þá tel ég þetta allt vera til bóta,“ sagði
Guðjón A. Kristjánsson nokkrum klukku-
stundum eftir að hann sá miðlunartillögu
Þóris Einarssonar ríkissáttasemjara. Daginn
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
eftir að tillagan var lögð fram fór Sjómanna-
blaðið Víkingur í prentun.
„I tillögunni eru tryggingarmálin eins og
við lögðum til.
Upphafshækkun
launa er 13 pró-
sent, sem út af
fyrir sig er ásætt-
anlegt, en við
söknum þess að
orlofshlutinn er
ekki með, það er
hækkun orlofs
með auknum
starfsaldri. Síðan
er ákvæði um
takmörkun úti-
vistar við fjörutíu
daga. Það mun
slá á þessa lengstu
túra, þeir verða
þá ekki lengri en
40 dagar og eins
verður sett eins
konar tilkynn-
ingaskylda
þannig að skip-
stjóra ber að til-
kynna áhöfninni,
í síðasta lagi á
tuttugusta og
sjötta degi, um
hvenær komið
verður komið til hafnar. Þar að auki þarf að
tilkynna þetta með minnst fjögurra daga fyr-
irvara. Með þessu fær áhöfnin meiri vissu um