Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Blaðsíða 40
Um brottkast á fiski
38. þing Farmanna- og fiskimannasamband íslands haldið í
Reykjavík, dagana 26. - 28. nóvember 1997, lýsir verulegum áhyggj-
um skipstjórnarmanna vegna þess hversu miklu er hent af sjávarfangi
samfara núverandi reglum um stjórn fiskveiða, verðsamningum og
framsali á leigukvóta.
Greinargerð:
Með því okurverði sem nú er á leigukvóta eru gerðir verðsamning-
ar að kröfu kaupenda um sjávarfang sem sjálflcrafa leiða til þess að um-
gengni um þann afla sem kemur í og á veiðarfæri allra fiskiskipa er oft
óhagstæður miðað við kröfur um arðsemi veiða og vinnslu.
Um örbylgjusenda
38. þing Farmanna- og fiskimannasamband íslands haldið í
Reykjavík, dagana 26. - 28. nóvember 1997, fagnar tilkomu nýja
langbylgjusendisins á Gufuskálum og þeim breytingum sem eiga sér
stað í útvarpssendingum á langbylgju. Jafnframt skorar þingið á Rík-
isútvarpið að nú þegar verði hafist handa við að koma upp örbylgju-
sendum á eftirfarandi staði: Gufuskálum (í mastrið), Hænuvíkur-
bjarg, Bolafjall, Gunnólfsvíkurfjall, Grænunípu, Háöxl og Grímsey.
Greinargerð:
Sjómenn eiga að geta notið útsendinga útvarps allra landsmanna
eins og þeir sem eru í landi. Með tilkomu nýja langbylgjusendisins á
Gufuskálum hefúr hlustun sjómanna á fjarlægum miðum gjörbreyst
til hins betra. A ákveðnum svæðum á grunnslóð eru hlustunarskilyrði
mjög slæm. Hægt er að bæta úr því með litlum tilkostnaði, eins og
Orlofshús
Félagsmenn athugið!
Til leigu:
íbuáir í Reykjavík
Nánari upplýsingar
á skrifstofunni
í síma 462 1870 fax 462 5251
*
SKIPSTJÓRA- OG STÝRIMANNAFÉLAG
NORÐLENDINGA
SKIPAGÖTU 14.602 AKUREYRI
t.d. á eftirtöldum stöðum: Gufuskálum (í mastrinu), Hænuvíkur-
bjargi, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli, Grænunípu, Háöxl og Grímsey.
Á þessum stöðum hefur Póstur og sími h/f [Landssíminn] komið upp
aðstöðu fýrir senda, þar er húsnæði og rafmagn. Við þessa staði er
hægt að færa senda til og jafnvel fækka minni sendum, þar sem þessir
staðir gefa meiri möguleika til sendingar fyrir alla landsmenn, það er
til lands og sjós. Hafa ber í huga að hér er ekki aðeins um þjónustu að
ræða, heldur einnig öryggismál fýrir sjófarendur við ísland.
Um veðurfregnir
38. þing Farmanna- og fiskimannasamband íslands haldið í
Reykjavík, dagana 26. - 28. nóvember 1997, ítrekar fýrri áskorun um
að Veðurstofa íslands lesi spár fýrir djúpin í hverjum veðurfréttatíma.
Þingið telur einnig brýnt að skipta norðurdjúpi í tvö spásvæði hið
minnsta.
Greinargerð:
Á tímabilinu frá september og fram í maí er rækjuflotinn að veiðum
djúpt í landgrunnsköntum vestur, norður og austur af landinu. Þau
skip er þessar veiðar stunda eru af ýmsum stærðum og gerðum og því
brýnt að veðurspá fýrir þessi svæði sé lesin jafn oft og veðurspár fýrir
önnur svæði. Sú vegalengd er skipin þurfa að sigla frá þessum svæð-
um í var, er víðast á bilinu 60-100 sml.
Um stimpilgjöld á kaup-
skipum
38. þing Farmanna- og fiskimannasamband íslands haldið í
Reykjavík, dagana 26. - 28. nóvember 1997, beinir þeim eindregnu
tilmælum til Alþingis fslendinga að samþykkja fýrirliggjandi frum-
varp til laga um breytingu á ákvæði laga nr. 36/1978 sem kveður á um
að stimpilgjöld af kaupskipum verði felld niður.
Um verndun lífríkis sjávar
38. þing Farmanna- og fiskimannasamband íslands haldið í
Reykjavík, dagana 26. - 28. nóvember 1997, fer þess á leit við stjórn-
völd að áður en nokkur starfsleyfi verði veitt til reksturs magnesíum
verksmiðju eða öðrum stóriðjuverum á Reykjanesi eða í öðrum lands-
hlutum, skal það rannsakað að fullu hvort efnistaka vegna starfsem-
innar gæti valdið hugsanlegri röskun á lífríki sjávar á þeim svæðum
sem fýrirhuguð hráefnisöflun fer fram á.
Um nýtt varðskip
38. þing Farmanna- og fiskimannasamband fslands haldið í
Reykjavík, dagana 26. - 28. nóvember 1997, skorar á dómsmálaráð-
40
Sjómannablaðið Víkingur