Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2000, Qupperneq 6
Mál á Alþingi
Á síðasta ári fengu 44 skip-
stjórar á fiskiskipum undan-
þágu til starfa þar sem þeir
höfðu ekki full réttindi. Þá
fengu 86 yfirstýrimenn undan-
þágu og 42 2. stýrimenn. Sam-
tals eru þetta 172 menn sem
störfuðu á 144 skipum. Sam-
tals bárust 232 umsóknir í fyrra
um undanþágu manna sem
gegna þessum störfum. Veittar
undanþágur voru 187, tak-
markaðar undanþágur 19 og í
25 tilvikum var umsóknum
44skipstjórar
a undanpágu
hafnað. I einu tilviki reyndist
umsókn óþörf þar sem um-
sækjandi var með nægileg rétt-
indi.
Þetta kemur fram i svari
Sturlu Böðvarssonar sam-
gönguráðherra við fyrirspurn
frá Guðmundi Hallvarðssyni
alþingismanni um hvaða und-
anþágur ráðuneytið hefði veitt
til að gegna stöðum skipstjórn-
ar- og vélstjórnarmanna á ís-
lenskum skipum frá 1. nóvem-
ber 1997 til sama tíma 1999.
Guðmundur óskaði eftir að
nafn skips sem tengist undan-
þáguveitingu ásamt stærð
þess og heimahöfn kæmi fram.
Þetta gekk eftir og í svari ráð-
herra er að finna lista yfir við-
komandi skip og fjöldi beiðna
um undanþágu á hverju skipi.
Þegar litið er á listann yfir síð-
asta ár kemur í Ijós að alls bár-
ust 834 beiðnir um undanþágu
skipstjórnar- og vélstjórnar-
manna. Veittar undanþágur
voru 681 sem skiptast á 358
skip. Á fjórum skipum var sótt
um 15 eða fleiri undanþágur.
Það eru Múlaberg ÓF 16 um-
sóknir, Hríseyjan EA 18 um-
sóknir, Björgúlfur EA 15 um-
sóknir og Júlíus ÍS 17 umsókn-
ir. ■
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra svaraði fyrirspurn
flokksfélaga síns, Guðmundar Hallvarðssonar.
Ný lög um rannsókn sjóslysa
Samgönguráðherra hefur
lagt fram á Alþingi frumvarp
um rannsóknir sjóslysa. Frum-
varpið er að stofni til það sama
og lagt var fram fyrir tveimur
árum af þáverandi samgöngu-
ráðherra en dagaði upp í þing-
nefnd. Á þessu þingi hefur
frumvarpinu verið breytt lítil-
lega meðal annars með tilliti til
athugasemda sem komu fram
við meðferð málsins og um-
sagna hagsmunaaðila á Al-
þingi. í frumvarpinu erákvæði
til bráðabirgða um að við gild-
istöku laganna falli úr gildi skip-
un núverandi rannsóknar-
nefndar sjóslysa og skal ráð-
herra eftir gildistökuna skipa
rannsóknarnefnd sjóslysa
samkvæmt lögunum.
Eins og í fyrra frumvarpi er
lagt til að sjóslysarannsóknir
verði algjörlega sjálfstæðar og
að því leyti hliðstæðar rann-
sóknum flugslysa en hingað til
hefur frumrannsókn sjóslysa
verið hjá lögreglu og í sjópróf-
um.
Starfsemi rannsóknarnefnda
sjóslysa verður því efld og
sjálfstæði hennar aukið. Sam-
hliða þessu frumvarpi er lagt
fram frumvarp um breytingar á
siglingalögum.
Það hefur i för með sér að
ekki verður lengur skylda að
halda sjópróf. En samkvæmt
frumvarpinu skal halda sjópróf
fyrir héraðsdómi ef Siglinga-
stofnun íslands, rannsóknar-
nefnd sjóslysa, eigandi, út-
gerðarmaður, leigutaki skips
eða skipstjóri fyrir þeirra hönd,
farmeigandi eða vátryggjandi
skips, áhafnar, farþega eða
farms eða lögreglustjóri, yfirvél-
stjóri, meirihluti skipshafnar
eða stéttarfélög viðkomandi
sjómanna óska þess sérstak-
lega. ■
6
Sjómannablaðið Víkingur