Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2000, Page 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2000, Page 42
Breska sjóslysarannsóknarnefndin hefur lýst áhyggjum yfir fámenni í áhöfnum skipa í strandsiglingum í Evrópu og þar séu stöður skipstjórnamanna of langar. stærð. Skipin verða smíðuð hjá Hyundai Heavy Industries og eiga þau að afhendast á árunum 2001 til 2003. Þessi skip verða engin smásmíði enda stærstu gámaskip heims og lengdin litlir 320 metrar með 43 metra í breidd sem gerir sautján gáma þvert yfir skipin. Þau verða í siglingum milli Evrópu og Asíu. Of miklar vökur Breska sjóslysarannsóknarnefndin, MAIB, sendi nýlega frá sér fréttatilkynningu þar sem lýst var áhyggjum vegna vaxandi vinnuálags á skip- stjórnarmönnum á minni kaupskipum f sigling- um milli hafna í Evrópu. Bendir nefndin á að mannleg mistök séu vaxandi orsök slysa og fækk- un í áhöfnum skipar þar stóran þátt. Miklar vök- ur séu algengar á minni kaupskipunum og hafa nokkur skip strandað þar í landi á undanförnum árum með skipstjórnarmann einan í brúnni og steinsofandi. Úff... enn pað fyllirí Það er stundum gott að sleppa því að fara í land þegar legið er í höfn erlendis. Þeir hefðu nefnilega vel þegið það tveir ungir hásetar á dönsku skipi, Hermann C. Boye, sem lá í Sharp- ness eftir að galsi þeirra í landlegunni hafði geng- ið aðeins of langt. Strákarnir tveir sem eru 17 og 19 ára voru á leið um borð eftir góðar stundir á pöbbunum þegar þeir gengu framhjá bílalager þar sem fleiri hundruð Ford Mondeo bílar biðu eftir kaupendum. Ákváðu þeir að fara inn á svæðið í stutta skoðunarferð og fengu sér sinn hvorn bílinn til að prófa. Þar sem þetta voru allt splúnku nýjir bílar þá voru þeir allir með lyklum í en svæðið var vel girt en þeim tókst þó að kom- ast í gegn. Þegar ökuferðum þeirra lauk voru 31 bi'll meira og minna skemmdir. Þótt sumir hafi aðeins verið með smá skemmdum dæmdi Ford alla bílana ónýta enda er enginn sem vill nýjan bíl úr kassanum sem er aðeins beyglaður nema ef um íslending væri að ræða. Samtals var tjónið metið á 50 milljónir króna. Strákarnir komust um borð án þess að nokkur vissi afþessu ævintýri þeirra en það var ekki fyrr en daginn eftir sem leikur þeirra komst upp. Lögreglan var reyndar eltki lengi að átta sig á því hvert þeir ættu að leita að sökudólg- unum því megn fiskifyla var í báðum bílunum sem keyrðir voru um svæðið. Hafði skip þeirra verið að losa fiskimjöl og má segja að farmurinn hafi orðið lögreglunni til hjálpar. Þeir neituðu í fyrstu að vera viðriðnir málið en viðurkenndu svo að lokum. Voru þeir umsvifalaust reknir frá skipafélaginu og dregnir fyrir dómstóla í Bret- landi þar sem þeir voru dæmdir í átta og sex mán- aða fangelsi. Nú er verið að reyna finna út hvaða tryggingar muni borga tjónið en ljóst er að trygg- ing skipsins sleppur við að borga. Eiturefnafarmur endursendur Gámaskipið Wanhe varð í byrjun febrúar að láta úr höfn í Vancouver með fjórtán gáma sem þar áttu að fara í land þegar uppgötvaðist að í þeim var eiturefnið PCP. Farmurinn kom frá bandaríska hernum í Japan og átti að fara í end- urvinnslu í Ontario þegar fjölmiðlar fengu veður af farminum. Þótt ekki séu neinar kröfur varð- andi PCP í Kanada sem banna að koma með efn- ið inn í Iandið varð þó að gera það að þessu sinni vegna mótmæla og mikillar umfjöllunar þar- lendra fjölmiðla. Þegar skipið hélt út úr höfninni höfðu Greenpeace sett borða á síðu skipsins sem á stóð „Poision PCP - Return to sender" Endalok Decca keðjunnar Nú er Decca staðsetningarkerfið endanlega þagnað. f Danmörku var slölckt á kerfinu í lok janúar s.l. en endalokin urðu þó í Church House í London þar sem kerfið var endanlega lagt niður. Kerfið er búið að þjóna sjófarendum allt frá árinu 1944 en þá geisaði styrjöld um heim allan. Var kerfið notað við innrásina í Normandí á D-dag- inn en áður höfðu njósnarar leitað uppi tundur- duflasvæði og með aðstoð decca keðjunnar komust skipin framhjá þessum hættum. Decca kerfið hefði átt möguleika á heimsútbreiðslu en svo varð ekki og má segja að ástæðan hafi verið sú að Decca Navigator, síðar Racal Decca, leigði móttakarana í stað þess að selja. Þó nokkur ís- lensk skip voru búin slíkum móttökurum s.s eins og síldveiðiskipin sem voru að veiðum í Norður- sjó um og eftir 1970 og einstaka kaupskip. Merki keðjunnar náðu þó ekki til íslands að undan- skyldu því að hægt var að ná merkjum upp undir landssteina á suðausturströndinni. Dópsmygl Níu tonn af kókaíni fundust um borð I kólóm- bísku flutningaskipi í höfninni Arica í Chile. Skipstjóri skipsins, sem er perúmaður, viður- kenndi að hafa tekið kókaínið um borð eftir að hafa fengið líflátshótanir ef hann ekki yrði við þeim fyrirmælum. Hann hafði verið á siglingu á opnu hafi þegar kókaíninu var komið fyrir um borð og var áhöfninni sem er 20 manns ásamt skipstjóra varpað í fangelsi og bíða þeir nú dóms fyrir smygl á eiturlyfjum. Dómur fallinn I síðasta tölublaði var frásögn um mál þar sem þrír þjóðverjar voru enn á ný dregnir fyrir dóms- stóla sökum skipstapa sem hafði orðið 10 árum áður. Skipið sem um ræðir hét Scantrader en 42 Sjómannablaðið VIkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.