Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1960, Síða 15

Náttúrufræðingurinn - 1960, Síða 15
NÁTT ÚRUF R Æ ÐINGURINN 9 ára gamall. Þar standa þessi orð um það, hvaða gróða það færir mönnum að sökkva sér niður í heilabrot um veðurfarið: „Sá, sem sífellt gáir að vindinum, sáir ekki, og sá sem sífellt horfir á skýin, uppsker ekki. Eins og þú veizt ekki, hvaða veg vindurinn fer, . . . eins þekkir þú heldur ekki verk Guðs, sem allt gjörir. Sá sæði þínu að morgni og lát hendur þínar eigi hvílast að kveldi, því að þú veizt ekki, hvað muni heppnast, þetta eða hitt, eða hvort hvort- tveggja verður gott.“ En þótt mest gæli þeirrar trúar í hinum fornu ritum Grikkja og Hebrea, að guðirnir hefðu vald á veðrinu, skaut þó skynsemis- trúin stundum upp kollinum. Skemmtilegt dæmi um átök þessara tveggja stefna ntá finna í gamanleikriti Aristofanesar, sem uppi var fyrir 2400 árum, en leikrit þetta nefndi hann Skýin. Hér lætur hann Strepsiades, bóndamann í Aþenu, rökræða við Sókrates um orsakir rigningarinnar: Strepsiades segir: Ef Scifur cr enginn til, skaltu segja þá Iregn, liver sendir oss regn, annars sýnist mér kenning þín slök. Sókrates svarar: Þú skalt vita á því grein: skýin valda því ein, það skal varið og færð að því rök: Hvenær rignir á grund eftir eina stund, þegar himinninn heiðríkur er? En heiðríkju úr gæti Hann þó scnt skúr, cf þú hefðir rétt fyrir þér! Þannig hnekkir Sókrates rökum bóndans með sinni heimsfrægu jDrætulist. Aristóteles kom fram á sjónarsviðið fyrir meira en 2300 árum, og bók hans, Meteorologica, átti eftir að verða höfuðrit veðurfræð- innar í næstu 2000 ár. Erfitt er að skilja, að svo langur tími skyldi líða, áður en hróflað var verulega við þessu riti, sem vitanlega

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.