Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1960, Page 25

Náttúrufræðingurinn - 1960, Page 25
NÁTTÚRUFRÆÐ1N G U R I N N 19 5. mynd. Myndin sýnir einn stærsta raíheila, sem nú er í notkun, svokallaðan IBM 704. Er hann meðal annars notaður við veðurspár í Washington. sagði hann: ,,Vera má að dag nokkurn í fjarlægri framtíð verði unnt að reikna veðrið með meiri hraða en það breytist sjálft, og með tilkostnaði sem er minni en ávinningurinn af spánum. En það er draumur einn.“ Sannleikans vegna er svo rétt að geta þess, að þegar Richards- son var búinn að reikna sex klukkustunda þrýstibreytingu í tveim punktum kortsins og hafði eytt í það sex vikum, þá kom í ljós, að í öðrum punktinum hefði loftvogin átt að falla um 17.9 mb eftir hans kokkabókum. Er þetta geysimikið og kemur varla fyrir nema í stórviðrum, enda hafði loftvogin í reyndinni nær engum breytingum tekið. En ekki nóg með það. í hinum punktinum reiknaði hann út, að loftvogin ætti að stíga urn 145.1 mb á þess- um 6 stundum, og var það stórkostleg fjarstæða eins og geta má nærri. Ástæðan til þess, að tilraun Richardssons misheppnaðist svo ógnar- lega, var ekki beint sú, að hann kynni ekki góð skil á lögmálum veðráttunnar. Er það skemmst frá að segja, að bók hans, sem er 220 blaðsíður í stóru broti, ber vitni geysilegum og alhliða lær- dómi í veðurfræðinni. Aðalgallinn var sá, að athuganir þær á einstökum stöðum, sem hann notaði, gáfu ekki nógu sanna mynd af veðráttunni á því stóra svæði, sem heyrði þeim til. Má sem dæmi nefna, að vindurinn á Akureyri gefur oft alranga hugmynd

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.