Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 46
38
NÁTTIJ RU FRÆÐIN GU RI N N
SUMMARY
The Peat on Skeidarársandur
by Jón Jónsson
The Stale Electricity Authority, Reykjavik.
On the glacial outwash plain Skeidarársandur in Soutliern lceland pieces of
peat have occasionally been found, carried down by the glacier-river from be-
neath the glacier. Such a piece of peat was found by the author in 1951. A
sample of this has now been dated by Dr. Ingrid Olsson at the C14 Dating
Station, Uppsala, Sweden. The sample, no. U 77, was found to be 4970 ± 100
years old.
This shows that the peat, as was to be expected, has bcen formed during the
warm phase of-thé Postglacial period.
Einar H. Einarsson:
Sandskel í Dyrhólaósi
Þegar minnst er á Dyrliólaós, er rétt að byrja á því að geta um
skýringu á ós-nafninu. í Skaftafellssýslu og víðar á Suðurlandi
merkir orðið ós lón þau, er víða myndast innan við sjávarkamp-
ana, þar sem vötn falla til sjávar, en þar, sem vatnið fellur í sjó,
kallast útfall. Þetta hefur valdið misskilningi í sumum landshlut-
um, svo ég tel rétt að geta þess, áður en lengra er haldið.
Síðari hluta júlímánaðar 1958 skruppum við Jóhannes Áskels-
son jarðfræðingur út í Dyrhólaey, til athugunar á leifunum af
grágrýtishrauninu, er þekur eyna að austanverðu. Fann ég þá skel
á norðanverðri eynni, sem ég kannaðist ekki við að hafa séð áður.
Töldum við, að fuglar hefðu iiorið skelina þangað. Eftir að við
höfðum athugað skelina, komust við að þeirri niðurstöðu, að
mikil líkindi værti á, að hér væri um Mya arenaria að ræða. En
þar sem okkur var ekki kunnugt um, að sú tegund Iiefði fundizt
hér við land, ákváðum við að ég geymdi skelina og sýndi hana
síðar Ingimar Oskarssyni.
Nokkru síðar komst ég að því, að börn frá Vestra-Skaganesi