Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1960, Page 50

Náttúrufræðingurinn - 1960, Page 50
42 NÁTT ÚRUF RTT) I N G U R I N N Selgresi (Plantago lanceolata). Ölviskross í Hnappadal V. Flækjumura (Galiurn mollugo), e. t. v. bastarður. Hefur vaxið tvö ár á Bústaðahæðinni í Reykjavík. Áður aðeins fundinn á Akureyri. G a u k a s ú r a (Oxalis stricta). Hefur vaxið í volgri jörð í Ht eragerði og blómgast nokkur ár. Sendi María Vigfúsdóttir mér eintök til athugunar í haust. Hef einnig séð sömu tegund í og við gróðurlnis í Víðigerði í Borgarfirði. Gaukasúra þessi er með jarð- renglur, uppréttan eða uppstígandi stöngul, þrífingruð blöð og gul blóm. Er slæðingur á Norðurlöndum. Heimkynni N.-Ameríka. Kirtilaugnfró (Euphrasia brevipila). I Hveragerði. Við flugvöllinn í Reykjavík, skammt frá birgðaskemmu, sá ég 17 tegundir slæðinga 12. september 1959. Má nefna hrukkunjóla, götudesurt, gullperlu (Rorippa silvestris), lierpunt (Agropyrum Smithii), borgarnjóla (Rurnex obtusifolius) o. fl. Ingólfur Davíðsson. Sjaldgœf veiði. Sumarið 1957, í júlí—ágúst, veiddust 6 gráröndungar (Mugil clielo) í silunganet í Dyrhólaós. Þrjá veiddi Sveinn Einarsson, Reyni, 2 heila og óskemmda, en 1 mikið étinn af marfló; hina þrjá veiddi Gunnsteinn Ársælsson, Reynishólum. Því miður sá ég ekki fiska þessa, svo að ég gæti mælt þá eða aldursákvarðað, en veiðendur telja, að þeir rnuni hafa verið 35 til 45 cm langir, svo að þetta hafa verið fiskar af meðalstærð. Fiskarnir höfðu verið mjög feitir. Ekki veit ég til, að veiðst hafi nerna einn gráröndungur áður í Dyrliólaós. Hann veiddist í sil- unganet síðsumars um 1950, — ekki alveg viss um ártalið. Gráröndungur er sjaldgæfur hér við land. Aðeins fáir hafa fund- izt hér við suðurströndina, allir að sumri til. Virðist gráröndung- urinn slangra upp að ströndinni, þegar sjávarhiti er mestur. Ann- ars hafa norðurtakmörk heimkynna hans af mörgum verið talin um norðanverðar Bretlandseyjar, en að sumrinu til slæðist hann norður á bóginn, til Noregsstranda og allt hingað til lands, þótt fárra hafi orðið vart. {Sbr. Bjarni Sœmundsson: Fiskarnir, 1026, bls. 152 og Arni Friðriksson i Náttúrufrœðingnum 1941, bl. 154.) Einar H. Einarsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.