Náttúrufræðingurinn - 1960, Qupperneq 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURI NN
43
Alþjóðlegar jrœðsluferðir til íslands.
í júlímánuði næstkomandi verður haldið í Stokkhólmi 19. al-
þjóðaþing landfræðinga og í ágústmánuði verður 21. alþjóðaþing
jarðfræðinga haldið í Kaupmannahöfn. Standa allar Norðurlanda-
þjóðirnar að þingum þessmn og \erða í sambandi við þau farnar
fræðsluferðir um öll Norðurlönd. Til íslands verða farnar tvær
fræðsluferðir. Sú fyrri, í sambandi við landfræðingaþingið, stend-
ur yfir dagana 23. júlí til 3. ágúst, en sú síðari, sem er jaiðfræðinga-
ferð, 1.—12 ágúst. Verður í báðum þessum ferðurn farin svipuð
leið, um Borgarfjörð til Norðurlands allt til Mývatns og Ásbyrgis
og um Suðurland austur að Skeiðarársandi. í fyrri ferðinni verða
30 þátttakendur en 00 í liinni síðari. Eru þátttakendur frá 20 þjóð-
um. í báðar þessar ferðir komust miklu færri en vildu og hefur
ekki verið jafnmikil aðsókn í neinar aðrar af fræðsluferðunum í
sambandi við þessi þing.
í íslenzku undirbúningsnefndinni, sem er sameiginleg fyrir báð-
ar þessar fræðsluferðir, eru eftirfarandi menn:
Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, formaður, Tómas Tryggva-
son, jarðfr., ritari jarðfræðingaferðarinnar, Valdimar Kristinsson,
cand. oecon., ritari landfræðingaferðarinnar, Guðmundur Kjartans-
son, jarðfr., Gunnar Böðvarsson, verkfr., Jóhannes Áskelsson, jarð-
fr., Klemens Tryggvason, hagstofustjóri, Sigurður Briem, ráðu-
neytisfulltrúi, Steingrímur Hermannsson, frkvstj. Rannsóknanáðs
ríkisins, og Trausti Einarsson prólessor. Fararstjórar fræðsluferð-
anna verða þeir jarðfræðingar, sem sitja í undirbúningsnefndinni
og Valdimar Kristinsson.
í sambandi við þessar fræðsluferðir verða gefnir út ítarlegir
leiðarvísar á ensku, aðallega jarðfræðilegs efnis. Auk þess kemur út
í Noregi tveggja binda ritverk á ensku um landafræði Norður-
landa. Ritstjóri er Axel Sönnne, prófessor við verzlunarháskólann í
Björgvin. Kaflann um ísland ritar Sigurður Þórai'insson.
Sigurður Þórarinsson.