Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 8
2
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
skörð þessi hafa runnið liraun, áður en Askja brotnaði niður, en
síðar hafa þau einkum runnið út um Öskjuop, en það er sennilega
sigdalur (graben), sem brotnað hefur niður samtímis Öskju.
í þessari grein er Askja talin jarðfall, rnynduð á þann hátt, að
hraunkvikuhólf, grunnt í jarðskorpunni, hafi tæmzt og þak hólfs-
ins síðan bilað og sigið, líkt því, sem átti sér stað, er Öskjuvatns-
spildan seig eftir gosið 1875. En einnig er oft talið, að öskjur verði
til í gífurlegum sprengigosum, svo miklum, að meginhluti fjall-
anna springi í loft upp. En hvað hefur orðið af hinu mikla magni
lausra gosefna, sem verða ætti til við slíkt sprengigos? Það er mörg
gátan enn óleyst í Dyngjufjöllum.
Dyngjufjöll eru gerð úr gosmóbergi nreð miklu blágrýtisívafi.
Rannsóknir á fjöllunum eru enn svo skammt á veg kornnar, að óvíst
er, hvort gosmóbergið, sem myndað er í eldgosum á jökultíma
(kvarter), hefur hlaðizt upp í geilum í eða undir jökli á ísöld, svo
sem flest móbergsfjöll hér á landi, eða undir beru lofti á hlýöld
milli ísalda.
Eftir að jökul síðustu ísaldar leysti af Dyngjufjöllum, hófust
þar hraungos. Eldstöðvar þær, sem hraun þessi eru komin frá, eru
ókunnar, enda munu flestar þeirra löngu huldar yngri hraunum.
Hraunin, sem runnin eru, áður en Askja varð til, mætti nefna
Dyngjufjallahraun (pretektonisk hraun). Þau þekja m. a. norður-
hluta fjallanna og hafa einnig runnið út um skörðin, sem áður
eru nefnd, enda var líklega þar, sem Askja er nú, hraunslétta, jafn-
liá hraununum á norðanverðum Dyngjufjöllum eða liærri. Þessu
fyrsta gosskeiði í Dyngjufjöllum á nútíma lauk, er jarðfallið mikla,
Askja, varð til. Líklega hefur spildan, þar sem Askja er nú, sigið
meir en 100 m í þessum umbrotum, svo sem brotabrúnin nyrzt
í jarðfallinu sýnir.
Samtímis og þó líklega einkum eftir að Öskjuspildan seig, liafa
enn orðið mikil eldsumbrot í Dyngjufjöllum og þá einkum í Öskju
sjálfri. Eldstöðvarnar hafa flestar legið á brotalínunum, sem af-
marka gosmóbergsrana Dyngjufjalla frá lirauni þöktunr botni
Öskju. Af eldstöðvum, sem virkar voru á þessu gosskeiði og fram
til 1875, eru fáar kunnar. Við Trölladyngjuskarð er gígaröð, og er
þaðan komið liraunið, senr nú þekur botn Öskju. Hraun þetta,
svo og önnur yngri, er gætu verið komin lrá litlum eldvörpunr í
Öskjuopi, hafa runnið út um Öskjuop og yfir eldri hraunfláka