Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 12
6
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
3. mynd. Jarðhitasprunga í Öskju sunnan Öskjuops. Séð að norðan. Hr =
Hrekkur, V == Víti, H = Hornfirðingahólmi (Eyja) og Þ = Þorvaldstindur í
baksýn. Leirlækurinn sést greinilega. — The hydrothermal jissure in Askja
frojn N. — Loftljósm.: Eðvarð Sigurgeirsson, 24. okt. 1961.
í desember 1922 og íebrúar 1923 verður enn vart jarðelds í
Öskju. 1 þessum gosum urðu til tvö smáhraun við suðaustanvert
Öskjuvatn, Kvíslahraun og Suðurbotnahraun.
1926 mun hafa gosið um vorið í Öskjuvatni rétt norðan Þor-
valdstinds, og varð þá til gjalleyja sú, sem nefnd hefur verið Horn-
firðingahólmi (Eyja).
Sunnan Dyngjufjalla liggur 7 km löng gossprunga með NNA—
SSV-stefnu. Þessi sama brotalína gengur síðan þvert gegnum há-
egg Þorvaldstinds, um Hornfirðingahólma, Víti og líklega norður
til Öskjuops. Frá gossprungunni rann á árunum 1926—1930 — ná-
kvæm tímasetning goshrinanna er ekki kunn — 16 km2 stórt hraun,
sem breiddist eingöngu út austan sprungunnar og allt suður til
Jökulsár, vestan Vaðöldu. Hraun þetta mætti nefna Þorvaldshraun,
enda eru stærstu gígar sprungunnar undir suðurrótum Þorvalds-
tinds (á kortinu, 1. mynd, sést aðeins nyrðri helmingur þessa
hrauns).