Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 16

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 16
10 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN ur allóvenjulega stefnu. Hún stefnir frá austri til vesturs. Gos- sprungur með slíkri stefnu eru annars aðeins kunnar af Snæfells- nesi, en norðanlands er stefnan að jafnaði frá norðri til suðurs og sunnanlands frá útsuðri til landnorðurs. Nýja gossprungan við Oskjuop mun vera bundin við brotalamirnar í norðanverðri Oskju og Oskjuopi, en þær hafa austur-vestur-stefnu. Alleinkennilegt var það og, að jarðhitasprungan og gossprungan skyldu stefna nær hornrétt hvor á aðra. Um leið og eða skömmu eftir að gosið hófst, mvndaðist ný livera- sprunga samsíða hinni eldri, en aðeins vestar, og kulnaði hin eldri út samtímis. Voru tveir stórir leirhverir á nýju sprungunni (13. mynd). Sennilegust skýring á hveraumbrotunum fyrir gosið er sú, að hraunkvikan, sem var að brjóta sér leið upp um jarðskorpuna, hafi stíflað fyrir jarðvatnsrennslið úr Öskju um Öskjuop. Síðan hafa heitar gosgufur úr hraunkvikunni blandazt jarðvatninu og hitað það upp. Heita vatnið og gufan leituðu síðan upp um sprunguna sunnan Öskjuops, er hún opnaðist. Eftir að gosinu lauk, mun hraun- kvikan storkna í gosrásinni. Af þessari ástæðu er líklegt, að vatns- borð Öskjuvatns og Vítis muni hækka um nokkra metra á næstu árum. Ofsi gossins var mestur fyrstu klukkutímana. Gosmökkurinn mun þá hafa náð 10 km hæð. Öskumökkinn lagði vegna norðan- áttarinnar, sem á var, til suðurs yfir Víti og Öskjuvatn. Vikurgeir- inn er fremur mjór, en um 1 m að þykkt á hraunsléttunni milli Vítis og Öskjuops. Víti var alþakið vikri, og á Öskjuvatni hafði vindurinn rekið vikurinn saman í hrannir, sem flutu á vatninu. Alls mun vikurmagnið, sem upp kom í fyrstu goshrinunni, hafa numið um 2 millj. m3, þ. e. um 2% af heildarmagni gosefnanna, og má það teljast allmikil vikurframleiðsla í hraungosi á sprungu. Annan daginn hafði dregið mjög mikið úr ofsa gossins. Þann dag náði gosmökkurinn um 2 km hæð (5. mynd). Dró síðan mjög úr vikur- og öskuframleiðslu gossins, er á leið. í byrjun gossins mun öll sprungan hafa gosið hrauni. Síðar var aðeins eystri helmingur gossprungunnar virkur, og viku eftir að gosið hófst, voru aðeins austasti og vestasti gígur virku sprung- unnar í gangi, og er enn lengra leið á gosið, aðeins austasti gígur- inn.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.