Náttúrufræðingurinn - 1962, Síða 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
13
12. myncl. Hraunstrókur í austasta gígnum. Séð að norðaustan um hádegis-
bilið h. 29. okt. 1961. Hæð stróksins um 75 m. í b'aksýn hraunstrókur í vest-
asta gígnum. — A lava fountain in the easternmost crater. Height ca 15 m.
Ljósm.: Þ. E.
Næsta dag var hraunbrúnin orðin 4—6 m há, og jaðarinn skreið
áfram með um 20 cm/mín. hraða. Þennan dag og næsta (28. og 29.) má
segja, að hraunjaðarinn liafi fremur oltið eða hrunið áfram en
runnið. Úr hraunbrúninni hrundu sífellt niður gjallmolar og björg
og molnuðu, svo að glitti í glóðina innan í þeim. Á þennan hátt
myndaðist gjallkennt lag framan við hraunbrúnina, sem seigfljót-
andi ltraundeigið skreiddist síðan yfir. Undir gjallskrofinu rnátti
víða sjá í glóðina í hraunbrúninni, er hún mjakaðist áfram með
snarkandi klið.
Viku síðar var enga hreyfingu að sjá á yztu hraunjöðrunum, en
þó sást alllengi glitta í glóðina í gegnum rifur á gjallþekjunni. Ofar
í Öskjuopi hrannaðist hraunið upp næstu dagana og þykknaði.
I byrjun nóvember, líklega h. 6., varð nokkur breyting á hraun-
rennslinu frá gígunum. Þá brauzt eldá austur úr austasta gígnum.
Hraunið, sem rann eftir þetta, var mjög þunnfljótandi og
breiddist út í Öskjuopi ofanverðu að sunnan, milli nýja hraunsins,