Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1962, Qupperneq 46

Náttúrufræðingurinn - 1962, Qupperneq 46
.86 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN er virtist af kúskel. Þar sem ég hafði engin tæki til að losa kúl- una úr berginu eða brjóta úr henni, varð ekki meira úr athugun að þessu sinni. En ég hugði gott til að koma þarna aftur betur búinn. Þetta sumar, 1952, hófst samvinna með okkur Jóhannesi Ás- kelssyni unr rannsókn á steingervingunum í Skammadalskömbum og nágrenni. Og er hann kom hingað í þeim erindum í ágúst- mánuði, skruppum við báðir austur í Núpa í Höfðabrekkuheiði og fundum þar þá nokkrar kúlur í viðbót, og voru skeljar í sum- unr. Okkur þótti sýnt, að þessar kúlur væru til komnar á sama hátt og þær, sem við höfðum þegar athugað í Skammadalskömb- um og nágrenni, á báðum stöðunum væru þær xenólítar („að- komusteinar“, „franrandsteinar"), þ. e. óskyldar gosmóberginu, sem þær liggja nú í, en sprengdar úr eldra berglagi, sem dýpra liggur, og bornar upp þaðan í hinu sama gosi sem myndaði mó- bergið. Það berg, sem þessir xenólítar eru af brotnir, er bersýni- lega setberg, myndað á sjávarbotni. Þar sem þeir liggja nú, að- fluttir neðan úr djúpinu, virtust okkur Jóhannesi þeir fylgja einu vissu lagi í móberginu. Hér læt ég útrætt um athuganir okkar Jóhannesar Áskelssonar í Skammadalskömbum og annars staðar í Mið-Mýrdalnum, en vísa um þær til áðurnefndrar ritgerðar hans. Eins og nærri má geta, var mér ómetanlegur styrkur að samvinnunni við svo ágæt- an vísindamann. Það, sem hér fer á eftir, er um mínar eigin rannsóknir, fyrst og fremst í Höfðabrekkuheiði. Þó kemst ég ekki hjá að geta hér einnig nokkurra athugana minna í Skammadalskömbum til sam- anburðar enda er sá staður að sumu leyti fróðlegri, liggur betur við rannsókn og hægari heimatökin, þar sem Skammadalskambar eru að heita má við bæjarvegginn hjá mér. II. Núpar í Höfðabrekkuheiði — Landslag og jarðlög. Eftir ferð okkar Jóhannesar Áskelssonar austur í Núpa 1952 komst ég ekki til að athuga þar neitt að ráði fyrr en haustið 1960. En þá kannaði ég alla austurbrún Höfðabrekkuheiðar frá Há- felli inn að Súgandagili ásamt hluta af Lambaskörðum, og tókst mér þá að finna ýmislegt markvert til viðbótar því, sem áður

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.