Náttúrufræðingurinn - 1962, Blaðsíða 49
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
39
2. mynd. Brot („kúlur") úr sjávarseti í móbergi. I. móberg, 2 sandsteinn,
3 leirsteinslög, 4 skeljar, 5 basaltvölur.
Xenoliths in palagoiiite tujj. 1 palagonite tuff, 2 sandstone, 3 mud-
stone, 4 shells, 5 basalt pebbles.
larið, og má þar sums staðar finna tómar liolur eftir kúlur, sem
liafa veðrazt upp.
6. í hábrúninni norðan við Núpakambinn sér á kafla í gráleitt
þunnt berglag ofan á kúlnalaginu, og virðist það harðnaður jökul-
ruðningur eða fornir aurar jökulvatna.
Þarna er brúnin um 120 m há y. s., svo að af því, sem fyrr var
sagt urn hæð sandsins við brekkuræturnar, má sjá, að samanlögð
þykkt allra framangreindra berglaga er aðeins nál. 70 m.
í sjálfum Núpakambi gætir blágrýtislaganna ekki, en ekki sést
greinilega, hvernig afstaða þeirra er til hans, því að norðan við
hann er allt berg hlíðarinnar hulið þykkum grónum jarðvegi frá
sandi að brún, aðeins hábrúnin gróðurlaus.
í Kambinum er kúlnalagið efst, en undir því virðist mér helzt,
að hann sé allur úr lítt eða ekki lagskiptu móbergi. En illa sér
til þess fyrir jarðvegi.