Náttúrufræðingurinn - 1962, Qupperneq 50
40
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
III. Steingervingalegundir fundnar í Núpum.
I setbergsbrotum (xenólítum) kúlnalagsins / Núpum hef ég að-
eins fundið sex tegundir steingervinga, sem liafa verið greindar
örugglega. Ingimar Óskarsson, náttúrufræðingur, Atvinnudeild Há-
skólans, hefur góðfúslega aðstoðað mig við greiningu þeirra. Teg-
undirnar eru þessar:
Kúskel Cyprina. islandica. Bæði samlokur (í lífsstellingum) og
stakar skeljar. — Kúskel lifir hæði í hlýjum og köldum sjó, algeng
nú kringum allt land, mest á 0—100 m dýpi. — Finnst einnig stein-
gervingur í Skammadalskömbum og Tjörneslögunum.
H a 111 o k a Macoma calcarea. Algengar bæði samlokur og stak-
ar skeljar. — Hallloka er mjög útbreidd tegund, lifir allt umhverfis
land á 0—150 m dýpi og við strendur Evrópu, a. m. k. frá Noregi
til Frakklands. — Algengur steingervingur bæði í Skammadalskömb-
um og á Tjörnesi. — í samanburði við núlifandi tegundir virðast
mér eintökin bæði úr Núpum og Skammadalskömbum nokkru
lengri og nær því að vera rétt sporöskjulöguð.
Bergbúi Zirphaea crispata. Ein brotin, hálfopin samloka. —
Bergbúi er grunnsævistegund. Hann finnst hér við land, en er ekki
talinn algengur. — Algengur við strendur Norðursjávar. — Hefur
ekki fundizt í Skanunadalskömbum, en aftur á móti á Tjörnesi.
Kræklingur Mytilus edulis. Örfá eintök og aðeins stakar
skeljar. — Kræklingur er mjög útbreidd tegund og hefur mikla að-
lögunarhæfni um hita og kulda. Algengastur á 0—20 m dýpi.
Krókskel Serripes groenlandicum. Þrjár stakar skeljar. —
Krókskel mun vera helzta kaldsævistegundin, sem ég hef fundið
í Núpum; getur þó lifað við svipaðan sjávarhita og nú er hér við
suðurströndina. Hún er nú mjög útbreidd í norðurhöfum, mest
á 0—120 m dýpi, og finnst hér við land. — Hún hefur ekki fundizt
í Skammadalskömbum, en aftur á móti í Tjörneslögunum.
ígulskel Cardium echinatum. Ein skel. — ígulskel lifir nú
við Suður- og Vesturland, einnig í Norðursjó og víðar við strendur
Evrópu, algengust á 15—150 m dýpi. — Hefur fundizt hæði í
Skammadalskömbum og Tjörneslögunum.
Auk þessa hef ég fundið tvær smáar skeljar, svo illa farnar, að
þær urðu ekki greindar til tegundar. Önnur er þó ugglaust Car-
dium sp.