Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 39
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
33
vegghæð um 15 faðmar, en innanmál 11 faðmar.) Þyrfti að varð-
veita þessa fjárborg eða hlað, eins og flestir þar vestra kalla hana.
í Tungudal, spölkorn innan við ísafjarðarkaupstað, er mjög
gróskulegt um að litast í hlíðinni, einkum innan skógræktargirð-
ingarinnar. Þar í skóglendinu eru stórir blettir gulflekkóttir af
stórvöxnum undafíflum, allt að metraháum, eða vel það. Sumir
fjölblaða og hinir tígulegustu. Þarna vaxa og margar burknateg-
undir og mikið af dúnhulstrastör og ígulstör. Mýrafinnungsblettir
eru sums staðar flikróttir af smjörgrasi. í brekkum og giljum í
sumarbústaðahverfinu í Tungudal hafa engjamunablóm (Myosotis
palustris) og freyjubrá (Chrysanthemum leucanthemum) breiðst
mjög út. í sjálfum ísafjarðarkaupstað sá ég 22 tegundir slæðinga,
þar á meðal skógarflækju (Rorippa silvestris), skógarkerfil (An-
thriscus silvestris), gulbrá, krossfífil, vafsúru og bókhveiti. Þórunn
Ellertsdóttir sýndi mér einkennilega baldursbrá, 70 cm háa með
alveg flatan, tæplega 7 cm breiðan stöngul. Körfur margar og mis-
stórar, flestar flatar. Margt er undarlegt í náttúrunnar ríki. Norðan
af Húsavík var mér sendur prestafífill (Chrysanthemum) harla ein-
kennilegur. Uxu smákörfur á stönglum upp úr aðalkörfunni. Svip-
að fyrirbrigði hef ég séð á fagurfífli (Bellis) í Reykjavík.
Sigurður Pétursson:
Suðurskautslandið - Antarktíka
Antarktíka, eða Suðurskautslandið, eins og við nefnum það venju-
lega, er sjötta álfan á yfirborði jarðar. Stærð þessarar heimsálfu er
rúmlega li/£-föld á við Ástralíu, og þekur hún meginhluta svæðis-
ins umhverfis suðurskautið og norður að 70. breiddarbaugi. Suður-
skautslandið er nær allt þakið jökli, svo þykkum, að þungi hans
þrýstir berggrunninum víða niður fyrir sjávarmál. Þrátt fyrir það
er þetta hálendasta heimsálfan; meðalhæð yfir sjávarmál er meiri
en nokkurrar annarar. Hæsti tindurinn (íslaus) er 5140 m. íshellan