Náttúrufræðingurinn - 2008, Qupperneq 7
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Aldursbil 5 ár, 0-4, 5-9,...
Aldursbil 5 ár, 0-4, 5-9,...
Aldursbil 5 ár, 0-4, 5-9,...
4. mynd. Dreifing 569 aldurs-
greindra einstaklinga í Álftanes-
hreppi, 427 í Bæjarhreppi og 673
aldursgreindra einstaklinga í
Stokkseyrarhreppi árið 1703. - Age
distributions for three communes
from the 1703 population census.
The age distribution of: 569 age-
specified in Álftanes, 427 age-
specified in Bæjarhreppur and 673
age-specified in Stokkseyrar-
hreppur.
ekki er marktækur munur á dreif-
ingu eftir kynjum í hverjum þessara
hreppa, en notuð eru 10 ára aldurs-
bil við samanburð (Álftaneshr. x =
6.6, d.f. = 9, p = 0,67, Bæjarhr. /2 =
2.7, d.f. = 8, p = 0,95, Seltjarnarneshr.
X2 = 8,9, d.f. = 7, p = 0,26, Stokkseyr-
arhr. x2 = 12,8, d.f. = 8, p = 0,11).
Hlutfall karla á móti konum er 1:1 í
Álftanes- og Seltjarnarneshreppi en
1:1,3 í Stokkseyrarhreppi (x2 = 11,5,
d.f. = 1, p < 0,001) og 1:1,4 í Bæjar-
hreppi (x2 = 12,1, d.f. = 1, p < 0,001).
Þekkt er úr síðari manntölum, t.d.
1769, að konur voru fleiri en karlar.13
Á 3. og 4. mynd sést að nokkur
„misfella" er í aldursdreifingu íbúa
Álftaneshrepps við 45 ára aldur.
Sambærilega misfellu má t.d. sjá í
aldursdreifingu Mosfellshrepps, en
hún er ekki sýnd hér. Slík misfella
fæst m.a. þegar fækkun verður
vegna farsóttar og fjölgun fæðinga
næstu árin. Um fjórum árum síðar,
eða 1707, eru þessir íbúar um fimm-
tugt og eldri. Eins og síðar verður
sýnt var dánarhlutfall í Stórubólu í
þessum aldurshópi í Álftaneshreppi
lægra en hjá þeim yngri.
Einnig er misfella í aldursdreif-
ingu íbúa Stokkseyrarhrepps við
tæplega 30 ára aldur (34 ára aldur
árið 1707) þar sem allnokkur munur
er á fjölda í aldurshópum kringum
þessi mörk (4. mynd). Ekki þarf að
vera nein ein skýring á þessu.
Árið 1703 eru um 18-19% íbúa í
Álftanes- og Seltjarnarneshreppi 45
ára og eldri. I Stokkseyrarhreppi er
þetta hlutfall 28% og 26% í Bæjar-
hreppi. Vafalaust eru fleiri en ein
skýring á þessum ólíku hlutföllum.
Þetta misræmi getur skýrst að hluta
ef fækkun hefur orðið í árgöngum
undir 45 ára í Flóanum vegna bólu-
sóttar þar 1672 og 45 ára og eldri
hafa sloppið að mestu við þá sótt
vegna ónæmis eftir bólusóttina sem
gekk á tímabilinu 1655-16587
Þetta verður kannað frekar með
tilgátu um að íbúar 35 ára og eldri í
Stokkseyrar- og Bæjarhreppi árið
1707 hafi verið með ónæmi vegna
fyrri bólusóttar þar árið 1672. Út frá
þessu er reiknaður sá dánarfjöldi
sem hefði mátt vænta í Stokkseyrar-
og Bæjarhreppi í Stórubólu (4. tafla).
DÁNARTÖLUR ÚR
BÓLUSÓTTINNI 1707
í Setbergsannál er skrá yfir 175 sem
létust í Álftaneshreppi. Jóni Steffen-
sen telst til að þeir séu 174. Hann
gerir grein fyrir tveimur einstakling-
um sem hann sleppir í útreikningum
og reiknar út frá 172 sem létustd
Miðað verður við pá dánartölu í útreikn-
ingum. I Setbergsannál er einnig
gefin hærri heildartala látinna, eða
195. Ekki er útilokað að í hærri töl-
unni séu þeir sem létust í Viðey, en
eyjunni var stjómað frá Bessastöðum
í Álftaneshreppi!6 Upplýsingar um
íbúa í Viðey vantar í manntalið 1703
en þar var þá sjúkraathvarf fyrir 12
ómaga!6 Jón Steffensen telur að það
kunni að skýra mun á dánartölum að
í dánartal Setbergsannáls vanti þá
sem dóu á sjö býlum í Álftanes-
hreppi.2-0
Þótt yfirleitt sé í dánarskránni ekki
getið um aldur né nöfn bama sem
dóu má samt meta dánarfjölda eftir
aldurshópum með hliðsjón af mann-
talinu 1703. Jón Steffensen hefur
flokkað 158 dána eftir aldri og 124
eftir kyni í Álftaneshreppi en hann
notar tíu ára aldursbil en 20 ára bil
fyrir þá yngstu. Fjórtán fullorðnir, 20
ára og eldri, hafa ekki verið staðsett-
ir nánar í aldurshóp. Notast verður
við þessa flokkun í útreikningum.
Heildardánartölur eru til fyrir um
60 hreppa.2 Þær er ekki hægt að
flokka eftir aldri eða kyni nema
í Álftaneshreppi. Dæmi um dánar-
tölur úr Setbergs- og Sjávarborgar-
annálum eru sýnd í 1. töflu.6-17
Hvað skýrir breytileika dánarhlut-
falls eftir hreppum? Vitað er að mis-
munandi aldursdreifing eftir hrepp-
um hefur áhrif þar sem t.d. lægra
dánarhlutfall var hjá einstaklingum
undir 20 ára aldri í Álftaneshreppi.
Eins og síðar kemur fram dugar sú
skýring ekki. Ekki eru nægar
vísbendingar um ólíkt dánarhlutfall
d Jón Steffensen sleppir tveimur: andvana fæddu bami og útlendingi,
syni Páls Beyers landfógeta.2 Hafi útlendingurinn verið smitandi eins
og aðrir ætti hann að teljast með.
e Ef þessi sjö býli (af 42), 16,7%, í Álftaneshr. 1707 hafa sloppið við smit
og ef sama hlutfall býla hefur sloppið 50 árum áður má ætla að um 16%
50 ára og eldri séu næmir 1707. Hafi flestir þessara næmu smitast 1707
hefur dánarhlutfall þeirra verið um 40% (case fatality-rate), sbr. 2. töflu,
og þá er heildardánarhlutfall 6,7% (0,167*0,4) í hópi 50 ára og eldri í
Álftaneshr. Þetta er nánast sama hlutfall og dó, í hópi 50 ára og eldri,
úr Stórubólu samkvæmt talningu í Álftaneshreppi, sjá síðar. Sambæri-
lega skýringu má nota á dánarhlutfall meðal „ónæmra" í Flóanum.
7