Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 8
Náttúrufræðingurinn
Aldursflokkar
0-19 20-29 30-39 40-49 50-59 60+ ^ 20 Samtals Látnir1707 SMR (95% öryggisbil)
Látnir 1707 61 34 26 32 4 1 14 172 172
Álftaneshreppur Fjöldi 1703 236 98 78 81 51 25 333 569
Dánarhlutfall 26% 35% 33% 40% 8% 4% 4% 30,2%
Fjöldi 1703 205 125 105 85 49 32 601
Selljarnarneshreppur 396
E 53,0 43,4 35 33,6 3,8 1,3 16,6 186,7 189 1,01 (0,87-1,17)
Fjöldi 1703 243 118 89 74 76 73 673
Stokkseyrarhreppur 430
E 62,8 40,9 29,7 29,2 6,0 2,9 18,1 189,6 140 0,74 (0,62-0,87)
Fjöldi 1703 146 72 65 60 43 41 427
Bæjarhreppur 281
E 37,7 25,0 21,7 23,7 3,4 1,6 11,8 124,9 100 0,80 (0,65-0,97)
2. tafla. Aldursbundin dánartala íÁlftaneshreppi og reiknuð dánartala (E) eftir aldri fyrir þrjá hreppa. SMR er hlutfall dánarfjölda í annálum (OMort)
og reiknaðs dánarfjölda. - The age-specific mortality rate is given for the commune of Álftanes. Accordingly, the expected (E) death numbers for three
other communes are given. SMR is the ratio of observed (OMort) and expected death numbers by commune.
SMR 95% öryggisbil
Seltjarnarneshreppu r 0,89 (0,77-1,03)
Stokkseyrarhreppu r 0,70 (0,59-0,83)
Bæjarhreppur 0,76 (0,62-0,93)
3. tafla. SMR er hlutfall dánarfjölda í annálum
og reiknaðs dánarfjölda. Reiknaður dánarfjöldi
miðast við ieiðréttingu’ á bamafjölda. - SMR is
the ratio of observed and expected death num-
bers by commune. Expected death number is
calculated according to ‘adjusted' number of
chiidren.
eftir kyni. Fjðldi látinna, sem Jóni
Steffensen tókst að greina eftir kyni,
eru 66 karlar og 58 konur. Þótt
dánarlíkur kvenna væru lítillega
lægri en karla hefur það óveruleg
áhrif á þá útreikninga sem gerðir
verða hér.
VAR SAMA ÓNvÍMI í HREPPUM
við Faxaflóa og í Flóanum?
Er hægt að skýra breytileika í
dánarhlutfalli eftir hreppum með
mun á hlutfalli ónæmra þar vegna
fyrri bólusótta? Þegar athugað er,
varðandi bólusóttina 1707, hvaða
dánarfjölda megi vænta (E: expect-
ed) í Seltjarnarnes-, Stokkseyrar-, og
Bæjarhreppum miðað við aldurs-
bundið dánarhlutfall í Álftanes-
hreppi (2. tafla) þarf að gera út-
reikninga með og án leiðréttingar
vegna „meintrar vantalningar"
barna í þessum hreppum, eins og
áður er getið. Áhrif útreikninga
með leiðréttingu eru metin út frá
því hvort ályktanir breytist miðað
við „óleiðrétta" útreikninga (sjá
síðar).
Notaðar eru aldursdreifinga- og
fjöldatölur í Álftanes-, Seltjamarnes-,
Stokkseyrar- og Bæjarhreppum úr
manntalinu 1703. Eins og áður er gert
ráð fyrir að aldursdreifing og fjöldi sé
nær óbreytt frá 1703-1707 í hverjum
þessara hreppa/ sjá þó athugasemd í
inngangi. Vegna flokkunar Jóns
Steffensen verða tíu ára aldursbil
notuð og 20 ára aldursbil fyrir þá
yngstu, en með þessu verður um
helmingur einstaklinganna 1703
innan sama aldursbils árið 1707. Sér-
stakur flokkur >20 ára, er í 2. og 4.
töflu, sbr. kaflann að framan um
dánartölur úr bólusóttinni. Ef aldurs-
bundið dánarhlutfall í Álftanes-
hreppi er notað til að reikna hvaða
dánarfjölda hefði mátt vænta í
hinum hreppunum þremur, þá fást
reiknaðar dánartölur til samanburð-
ar við talningu látinna (óMort;
observed mortality) (2. tafla).
Af töflunni sést að reiknuð dánar-
tala fyrir Seltjarnarneshrepp er nærri
þeirri sem er uppgefin í Setbergs-
annál. Hlutfall þessara talna (SMR:
standardized mortality ratio18) er
gefið í 2. og 3 töflu með 95% öryggis-
bili (öb.). Því getur sama aldurs-
bundna dánarhlutfall átt við hrepp-
ana tvo við Faxaflóa. Fyrir hreppana
í Flóanum fæst ofmat miðað við
dánartölur gefnar í artnálnum. Sá
munur er marktækur (p < 0,05) og
því eru hreppamir tveir í Flóanum
ólíkir hreppunum við Faxaflóa.
í Álftaneshreppi er hlutfall milli
fjölda 0-19 ára og 20-29 ára 2,41. í
hinum hreppunum þremur er þetta
hlutfall um 2 eða lægra. Gerum nú
ráð fyrir að 0-19 ára séu vantaldir í
hreppunum þremur. Ef útreikning-
arnir að ofan eru endurteknir eftir að
bætt hefur verið við aldurshóp 0-19
ára í hverjum hreppanna þriggja,
þannig að hlutfallið milli 0-19 ára og
20-29 ára verði um 2,4 þá fæst
niðurstaða sem birt er í 3. töflu.
Marktækur munur (p < 0,05) er,
eins og áður, á reiknaðri dánartölu
og dánartölu í annálum fyrir hvorn
hreppanna í Flóanum. Fyrir Sel-
tjarnarneshrepp er munurinn ekki
marktækur eins og áður. Því eru
ályktanir óbreyttar frá 2. töflu.
Af 2. töflu má sjá að í Álftanes-
hreppi dóu 92 á aldursbilinu 20-49
ára og að auki dóu 14 fullorðnir, eða
>20 ára, en hluti þeirra hefur verið
undir fimmtugu. Því er almennt
f Ef hlutfall bama 1707 skyldi vera vanmetið með þessari aðferð þá er leiðréttingar vegna þessa.
sýnt með niðurstöðum sem koma á eftir 2. og 4. töflu hver eru áhrif
8