Náttúrufræðingurinn - 2008, Page 17
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Geislakolsaðferðin
skriðunni fundust þrjár hauskúpur
til viðbótar ásamt fleiri beinum.
Allar hauskúpurnar fimm fundust
á innan við eins metra löngu svæði.
Fundarstaðnum var ekki raskað
frekar. Hauskúpunum fimm var
safnað ásamt öðrum beinaleifum
og búið um þær á staðnum til
flutnings en beinin virtust mjög
viðkvæm fyrir hnjaski. Að svo
búnu var farið með beinin á Nátt-
úrufræðistofnun íslands þar sem
þeim var komið í vörslu steingerv-
ingasafns NÍ.
Þann 21. júlí 2005 mæltu Jón
Hallur, Björk og Margrét Hallsdóttir
sér mót við Hvalsárhöfða þar sem
Margrét skoðaði aðstæður. Safnað
var nokkrum beinabrotum sem lágu
laus og Margrét tók í sína vörslu en
staðnum var ekki raskað að öðru
leyti.
Margrét hafði síðan samband við
Pál Hersteinsson, sem fór á staðinn
21. júlí 2006. Þar fann hann tvær
hauskúpur til viðbótar (8. mynd)
ásamt fleiri beinum úr refum, fugl-
um og fiskum. Þeim var komið til
vörslu í steingervingasafni NI.
8. nnjnd. Ein Imuskúpnn snmn dng og hún fnnnst og nður en hún vnr hreinsuð, nsnmt
brotum úr tveim kjálkum. - One of the skulls on the dny it wnsfound nnd before it ums
clenned, together with two broken lower jaivs. Ljósm./photo: Páll Hersteinsson.
Aldursgreiningar með geislakolsað-
ferðinni byggjast á því að mæla
hlutfall geislavirku kolefnissamsæt-
unnar 14C í heildarmagni kolefnis
(en venjulegar kolefnissamsætur
hafa atómmassann 12 eða 13, þ.e.
12C eða 13C, og eru ekki geislavirk-
ar). Geislavirkt kolefni myndast í
andrúmsloftinu vegna geimgeisla
7. mynd. Ytrn hvolfið er klætt rauðleitu, blöðróttu bergi, sem losnaði við sprengingarnar,
og í skriðunni úr því voru beinaleifarnar. - The cave is enveloped in reddish rock and the
bones werefound within the scree that itformed. Ljósm./photo: jón Hallur Jóhannsson.
Sex af sjö hauskúpum virtust vera
af fullvöxnum dýrum en ein þeirra
var líklega af stálpuðum yrðlingi
sem drepist hefur síðsumars.
ElNANGRUN BAND-
VEFJAR ÚR HAUSKÚPUNUM
Haustið 2006 fór Páll Hersteinsson
með allar hauskúpurnar sjö til
Stokkhólmsháskóla til aldursgrein-
ingar. Við fornleifastofnun Stokk-
hólmsháskóla einangraði Veronica
Nyström bandvef úr u.þ.b. 100 mg
af beinsalla úr hverri hauskúpu til
þess að afla kolefnis og bjó sýnin
undir aldursgreiningu með afbrigði
af svokallaðri Longin-aðferð.9 Alls
náðust nothæf bandvefjarsýni úr
sex af hauskúpunum og voru þau
send til aldursgreiningar á
Ángström-rannsóknarstofuna við
Uppsalaháskóla.
17