Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 24

Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 24
Náttúrufræðingurinn bundnir grunnvatni firtnast einstak- lingar sömu tegimdar beggja vegna Atlantshafs og Kyrrahafs og á stök- um eyjum í Karíbahafinu, sem og í Atlantshafi.12 Ekki hafa fundist dæmi um að þessar tegundir hafi náð að flytjast milli eyja. Þær hafa ekki svif- lægar lirfur, geta ekki flust með rekaviði eða jurtaleifum og lifa ekki af flutning með mönnum eða dýr- um. Því er jafnvel talið að þær hafi flust milli svæða við jarðplötuhreyf- ingar og séu merki um mjög gamla stofna, sem lítið hafi breyst.12-13 Nú velta vísindamenn vöngum yfir hvers vegna þessir „gömlu" stofnar finnist á ungum eyjum, svo sem á Kanaríeyjum, Havaí og Galapagos- eyjum. Stock hefur sett fram þá til- gátu að forverar grunnvatnsmarflóa í fersku vatni hafi getað lifað á allt að 200 m dýpi á landgrunni þessara eyja áður en þær náðu upp á yfir- borðið.11 Ekki hafa þó ennþá verið lögð fram fullnægjandi gögn til að sannreyna þessa tilgátu. Grunnvatnsmarflær sýna oft greini- lega aðlögun að því búsvæði sem þær lifa í, bæði lífeðlisfræðilega og útlits- lega. Marflær í grunnvatni geta betur nýtt sér orkubirgðir líkamans og eru betur aðlagaðar að svelti en skyldar tegundir í ferskvatni ofanjarðar,14 en grunnvatn er oft snautt af næringu og súrefni. Líkami grunnvatnsmarflóa er oft mjór (ormlaga), augu lítil eða horf- in, líkami litlaus; ákveðnir útlimir hafa lengst, svo sem fálmarar og fætur, og ný skynfæri hafa þróast („pereopodal" skynfæri); einnig greinist oft fækkun útlima sem og smækkun útlima sem beitt er við sund.911 Meðal margra grunnvatnsmarflóa er einnig greinileg aðlögun í lífssögu; kynþroska hefur seinkað, einstaklingar verða langlífari, hrygna fáum en stórum eggjum og hafa skekkt kynjahlutfall kvendýrum í hag.9,16 ' 3. mynd. Fundarstaðir marflónna eru í uppsprettum. A - Vatnsvik í Þingvallavatni þar sem marflærnar fundust fyrst. Marflærnar veiðast í uppsprettum úr botni og itndan helluhrauni t bökkum. B - Uppspretta þar sem vatn kemur upp ígegnum botnsand. C - Upp- sprettur við Lækjarbotna í Holta- og Landssveit. D - Uppsprettuauga þar sem marflær veiddust við Lækjarbotna. - The amphipods have beenfound in springs. A - Vatnsvik in Thingvallavatn where the amphipods were first found. The amphipods arefound in springs that come up in the bottom andfrom under the banks. B - A spring comes up through the gravel. C - Springs by Lækjarbotnar in Holt and Landssveit. D - A spring opening by Lækjarbotnar. Ljósm./photos: Bjarni K. Kristjánsson. 24

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.