Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
4. mynd. Útbreiðsla grunnvatnsmarflóa á íslandi Crymostygius thingvallensis er sýnd með stjörnum en Crangonyx islandicus
með þrthyrningum. Kortið sýnir einnig hraun sem runnið hafa á nútíma, lituð rauðbrún. - Known distribution of groundwater
amphipods in Iceland (stars: Crymostygius thingvallensis; triangles: Crangonyx islandicus). Lavafields created since the last glaci-
ation (110,000 years; dark brown) are shown.
Útbrjeiðsla grunnvatns-
MARfLÓAÁ ÍSLANDI
Árið 2004 veitti Rannís styrk til þess
að kanna útbreiðslu marflóa á
Islandi og hófst þá skipulögð leit að
þeim, en því verkefni lauk árið 2006.
Ekki er þó hægt að segja að leit að
grunnvatnslífverum verði nokkum
tíma tæmandi. í verkefninu var lögð
áhersla á að leita að marflóm á eld-
virkum svæðum landsins. Ástæða
þess var tvíþætt; annars vegar eru
uppsprettur (3. mynd) hvað al-
gengastar innan þess svæðis, hins
vegar tengdist sýnatakan rannsókn-
um á dvergbleikju, en þær finnast
einnig í uppsprettum á eldvirkum
svæðum. Marflær hafa mjög víða
fundist við rafveiðar, en einnig hafa
þær á nokkrum stöðum eingöngu
fundist í mögum dvergbleikju.
Marflóin Crymostygius thingvall-
ensis hefur fundist á tveimur stöð-
um á landinu (4. mynd). Einstak-
lingar sem notaðir voru við lýsingu
tegundarinnar fundust í Þingvalla-
vatni1 og nýlega fannst einn einstak-
lingur í maga dvergbleikju úr
Herðubreiðarlindum.17 Crangonyx
islandicus hefur á hinn bóginn fund-
ist rnjög víða innan eldvirka svæðis-
ins (4. mynd), oft í þónokkrum
mæli. í öllum tilvikum hefur hún
fundist í lindum eða í mögum
bleikju úr lindum sem koma undan
hrauni (1. tafla). Eina undantekn-
ingin á því eru marflær sem fundust
í mögum bleikju sem veiddist í
uppsprettum í Jökulsárgljúfrum,
neðan Hafragilsfoss.17 Áhugavert er
að þær grunnvatnsmarflær sem
veiðst hafa eru langflestar ókyn-
þroska kvendýr.3,4
25