Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 27
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
angrast frá sjávarmarflóm.91012 Þessi
tilgáta hefur áður verið notuð til að
útskýra uppruna grunnvatnsmar-
flóategunda, en við teljum hana
ekki mjög líklega til að útskýra upp-
runa íslensku tegundanna. Annars
vegar er það vegna þess hve ættin
(þ.e. Crangonyctidae) er útbreidd.
Einnig hafa tegundir af þessari yfir-
ætt ekki heldur fundist í sjó. Það er
ekki gott að segja til um uppruna
C. thingvallensis þar sem hún er eina
þekkta tegund sinnar ættar. Erfða-
fræðirannsóknir á íslensku grunn-
vatnsmarflónum og samanburður
við aðrar tegundir marflóa geta þó
nýst okkur við að kanna þessa til-
gátu til hlítar.
HVAÐAN KOMU MARFLÆRNAR
UPPHAFLEGA?
Fundur þessara grunnvatnsmarflóa
bendir sterklega til þess að grunn-
vatn á íslandi hafi á einlwerjum tíma
verið í tengslum við grunnvatnsæð-
ar meginlanda. Þartnig hafi Island
(eða forveri þess) verið tengt eða leg-
ið upp við meginlönd. Aður hafa
menn nefnt landbrú sem hugsanlega
forsendu þess að ákveðnar tegundir
hafi lifað á íslandi.26
Jarðfræðisaga Islands er talin hafa
mótast af flekahreyfingum og
breytingum á stöðu heita reitsins
undir landinu. Saga heita reitsins,
breytingar á staðsetningu hans og
eldvirknin sem fylgir honum getur
hugsanlega einnig skýrt tilvist mar-
flónna. Feril heita reitsins sem er nú
undir Islandi má rekja aftur um
a.m.k. 60 milljón ár.27-28 Fyrir 56-58
milljón árum var heiti reiturinn
undir miðju Grænlandi en við aust-
urströnd Grænlands fyrir um 40
milljón árum. Vegna flekahreyfinga
færðist Grænland í vestur og
þannig færðist heiti reiturinn inn í
Norður-Atlantshaf og nálgaðist
flekaskilin á Atlantshafshryggnum
fyrir um 20 milljón árum.27 Meðan á
þessu ferðalagi stóð myndaði heiti
reiturinn Íslands-Grænlandshrygg-
inn í röð eldgosa. Ekki er ólíklegt að
forveri íslands hafi þannig verið
hluti Grænlands fyrir um 40 milljón
árum og forverinn hafi ætíð, vegna
eldvirkninnar, verið að hluta ofan-
sjávar á leið sinni að þeim stað þar
sem landið liggur nú. Forverinn
hefur þannig alltaf haldið grunn-
vatni þar sem marflærnar gætu hafa
þrifist.
Stuðning við þessa tilgátu er ekki
unnt að fá út frá aldri íslensks bergs,
en elsta aldursgreinda berg á Is-
landi er um 16 milljón ára gamalt.
Þó hefur því verið haldið fram að
leifar úthafsskorpu, um 30 milljón
ára gamallar, megi finna undir
miðju landinu og sé hún hulin yngri
berglögum.29 Ljóst er þó að mikil
þörf er fyrir auknar jarð- og jarðeðl-
isfræðilegar rartnsóknir til þess að
skera úr um þetta.
LOKAORÐ
í þessu yfirliti höfum við sagt frá
fundi, útbreiðslu og tilgátum um
uppruna grunnvatnsmarflóa á Is-
landi. Rannsóknir á þeim eru þó á
fyrstu stigum og enn vantar marg-
víslegar upplýsingar um þennan
sérstæða hóp í lífríki Islands. Einnig
er óljóst hvort fleiri tegundir og
dýrahópar kunni að hafast við í
grunnvatni á Islandi. Við höfum
þannig ráðgert næstu skref í rann-
sóknum okkar á grunnvatnsmar-
flónum, en þau eru tvíþætt. Saman-
burður á erfðaefni íslenskra grunn-
vatnsmarflóa og annarra tegunda
marflóa, jafnt erlendis og milli
stofna (fundarstaða) innan íslensku
tegundanna, getur varpað ljósi á
uppruna þeirra. Einnig stefnum við
að því að rannsaka grunnþætti í
vistfræði tegundanna, svo sem
fæðu, kynþroska og eggjafjölda.
Það er von okkar að með rannsókn-
unum fáum við meiri innsýn í líf
þessara áhugaverðu dýra, sem auð-
veldi okkur að meta mikilvægi
þeirra og verndargildi.
SUMMARY
Two new species of subterranean
amphipods (Crustacea) have recently
been discovered in Iceland. One of the
species belongs to a new family of
amphipods. These findings support a
hypothesis that there were subglacial
refugia in Iceland during the Quaternary
period.
Iceland was covered by glaciers
between about 2.6 M years B.P. to about
ten thousand years B.P. It is an isolated
island on top of the mid-Atlantic Ridge in
the N-Atlantic Ocean, far from the North
American and European continents. The
presence of subterranean amphipods,
belonging to an old group with its pres-
ent distribution mainly in North America
and the Eurasian continent, indicates
past contact of subterranean freshwaters
of Iceland and the North Atlantic conti-
nent. The amphipods currently found in
Iceland may have been present in
Greenland 40 M years ago, when the pre-
cursor of Iceland drifted together with
the hot spot (Iceland plume) from
Greenland.
27