Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 39

Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 39
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 2. mynd. Sex merkir vísindamenn sem notuðu tæki með prismum úr silfurbergi við rannsóknir m.a. í efnafræði og líffræði. Efri röð frá vinstri: ]ean Baptiste Biot (1774-1862), Louis Pasteur (1822-1895) og Christian Gottfried Elirenberg (1795-1876). Neðri röð frá vinstri: Emil Fischer (1852-1919), Otto Lehmann (1855-1922) og Alfred Werner (1866-1919). - Six famous scientists who used lceland spar crystals in their research. rænum efnum í vatni eða öðrum leysiefnum og var snúningurinn á gefinni vegalengd í lausninni hér um bil í hlutfalli við styrk uppleysta efnisins. Þessi eiginleiki efnanna hefur verið nefndur optísk virkni þeirra (e. optical activity, fr. pou- voir rotatoire, þ. Drehungsver- mögen). Optíska virknin er ein- kennandi fyrir viðkomandi efni á svipaðan hátt og t.d. eðlismassi þess eða bræðslumark. Skautunarsmásjár. Látum geisla af skautuðu hvítu ljósi leggja af stað gegnum þunnt sýni af glæru efni. Ef efnið er tvíbrjótandi klofnar ljós- geislinn í tvennt í því eins og fyrr sagði. Þessir tveir geislar ferðast mishratt inni í efninu og eru því sveiflurnar í þeim komnar nokkuð „út úr takti" þegar í gegnum sýnið er komið. Sá munur er breytilegur eftir lit og getur fyrir suma liti orðið þannig að geislarnir eyði hvor öðrum að meira eða minna leyti ef þeim er blandað saman að nýju á tiltekinn hátt með hjálp annars Nicol-prisma. Einstöku jarðfræð- ingar hófu um 1860 að nýta sér smá- sjár með slíkum viðbótarbúnaði til að skoða örþunnar sneiðar bergs. Kristallakorn mismunandi steinda í berginu, sem höfðu mismikinn mun brotstuðla, fengu í þessum smásjám sinn litinn hver steind og lærðist fljótt að þekkja þær í sundur. Eftir að það spurðist út hvílíkt gagn slík skoðun gæti gert hófu ýmis verk- stæði að framleiða þessar skautun- arsmásjár til sölu fyrir og um 1880. Með aukabúnaði mátti mæla brot- stuðla kristallanna nákvæmlega og gaf það upplýsingar um byggingu þeirra og efnasamsetningu. Ljósstyrksmælar. í þeim ljósmæl- 39

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.