Náttúrufræðingurinn - 2008, Qupperneq 45
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Má sjá í tímaritum frá því um 1880
og fram yfir 1920 að sú tegund var
talsvert notuð,39,40,41 meðal annars
við rannsóknir á blóðrauða.42 Var þá
kannað til dæmis hvort hann væri
mismunandi eftir dýrategundum,
hvort hann breyttist í sjúkdómum
og hvaða áhrif kolildi hefði á hann.
Útfjólublátt ljós komst ekki að ráði
í gegnum þær glertegundir sem
framleiddar voru fyrir 1905 eða svo.
Því var silfurberg eða kvars stund-
um notað til að tvístra því ljósi í glers
stað, meðal annars af J.-L. Soret.
Hann fann43 þartnig að ljósgleypni
blóðrauðans var einkar mikil á til-
teknu útfjólubláu tíðnibili sem síðan
er við hann kennt. Soret og fleiri
körtnuðu eirtnig með slíkum prism-
um hvernig útfjólublátt ljós veldur
skemmdum á vefjum og þau komu
við sögu þeirrar uppgötvunar kring-
um aldamótin 1900 að sitthvað sé
líkt með blóðrauða- og blaðgrænu-
sameindunum.44
Notkun litrófs-ljósmæla til hvers-
kyns efnagreininga á lífrænum og
ólífrænum efnum jókst síðan jafnt
og þétt fram eftir 20. öldinni, ekki
síst eftir að rafrænir ljósnemar
gerðu kleift um og upp úr 1930 að
tengja þá við sírita. Önnur gerð ljós-
mæla og mun einfaldari sem kallað-
ir hafa verið litmælar (e. colorimet-
ers) komu einnig mjög víða að
gagni við efnarannsóknir á 20. öld,
en Nicol-prismu voru aðeins í fáum
tækjum þeirrar gerðar á markaðn-
um.
Sé ljósgeisli sendur gegnum
vökva sem inniheldur svifefni á
borð við stórar lífrænar sameindir
eða fíngert grugg dreifist nokkuð af
ljósinu til hliðanna. Eðli þessarar
ljósdreifingar skýrðist mjög við
rannsóknir J. Tyndalls á dreifða
ljósinu45 með Nicol-prismum. Síðar
spruttu upp úr því aðferðir til að
meta magn svifefna í lausn með
skautunar-ljósmælum,46 og gátu
þeir mælar einnig veitt vissar upp-
lýsingar um stærð og lögun svif-
efnisagnanna ef með þurfti.
Meðal þekktustu vísindamanna
sem rannsökuðu birtu- og lita-
skynjun mannsaugans á síðari hluta
19. aldar voru H. v. Helmholtz og E.
Hering. Kenningar þeirra um hana
voru mjög mismunandi en hafa haft
mikil áhrif allt fram til okkar daga.
Þeir og margir aðrir notuðu til-
raunabúnað með Nicol-prismum til
að breyta ljósmagni í tilraunum sín-
um, stundum þróaðan upp úr áður-
nefndum ljósmælum. H. v. Helm-
holtz fann sjálfur upp slík sjónpróf-
unartæki (8. mynd) sem beitt var í
áratugi47-48 við almennar vísinda-
rannsóknir á þessu sviði. í öðrum
tækjum voru auk Nicol-prismanna
kvarsplötur til að búa til margskon-
ar liti49 og gerðu þau gagn víða við
að finna hinar ýmsu tegundir lit-
blindu og fleiri sjóngalla í fólki.
Þessar litasjár voru þó líklega mest
notaðar í iðnaði þar sem litir vör-
unnar skiptu miklu máli, svo sem í
prentverki og matvælaframleiðslu.
I tengslum við ofantaldar sjón-
rannsóknir má að síðustu nefna að
prismu úr silfurbergi voru í
nokkrum gerðum tækja sem hönn-
uð voru á áratugunum kringum
1900 til skoðunar og mælinga á aug-
unum sjálfum.50
Lokaorð
Hér lýkur umfjöllun um notkun
silfurbergsins úr Helgustaða-
námunni (9. mynd) í ýmsum rann-
sóknum tengdum líf- og læknavís-
indum fram á þriðja áratug 20. ald-
ar. Þetta efni átti einnig verulegan
þátt í þróun annarra sviða náttúru-
vísinda og tækni á sama tímabili.
Ef menn kynna sér þá þróun og um
leið öll áhrif vísindanna á þjóðfélög
nútímans ætti mikilvægi námunn-
ar í samhengi við mannkynssögu
síðustu alda ekki að vefjast fyrir
neinum. Því miður hafa lands-
menn lítið um hana sinnt undan-
farna áratugi.
Um aldamótin 1900 tóku silfur-
bergskristallar, sambærilegir við
efnið frá Helgustöðum að stærð og
gæðum, að berast í smáum stíl frá
öðrum fundarstöðum til vísinda-
manna og tækjasmiða. Meðal ann-
ars var silfurberg unnið við Hoffell
í Hornafirði um skeið frá 1911.
Talsvert magn var flutt út frá Suð-
ur-Afríku upp úr 1920 og síðan
tóku enn önnur svæði við. A árinu
1933 var fyrst veitt einkaleyfi fyrir
8. mynd. Litablöndunarbúnaður H. v. Helmholtz til sjónprófana, endurbættur af A.
König" um 1890. Séð er ofan á tækið, breidd þess er tæpur metri. Athugandi situr við S
og horfir á mismunandi litt Ijós frá lömpunum Gl, G2 sem blandast í glerprismanu P.
Prisnmn Nl, N2 og strendingarnir Kl, K2 eru úr silfurbergi. - Helmholtz' color mixer
for testing human visual perception.
45