Náttúrufræðingurinn - 2008, Qupperneq 46
N áttúruf ræðingurinn
þynnum úr gerviefninu Polaroid,
sem verkar á ljós á svipaðan hátt
og túrmalín-kristallarnir sem
nefndir voru framarlega í grein-
inni. Tóku endurbættar gerðir
þeirra víða við hlutverki Nicol-
prisma í ljóstækjum eftir 1940 eða
svo, en reikna má með að frá sjö-
unda áratugnum hafi eftirspurnin
eftir prismunum aukist aftur.
Tengdist það ekki síst notkun
hinnar nýju leysitækni við ljós-
fræðirannsóknir og er enn mikið
framleitt af silfurbergsprismum.
Þeirri þróun í náttúru- og lækna-
vísindum sem hefur verið lýst í
þessari grein, og átti íslenska silfur-
berginu árangur sinn að þakka að
talsverðu leyti, var síðan að sjálf-
sögðu haldið áfram á grunni hinna
fyrri uppgötvana. Má til dæmis sjá
þess merki í Nóbelsverðlaunum
fyrir rannsóknir í efnafræði á ára-
tugunum eftir 1925, svo sem varð-
andi kolvetnasambönd, lífræn litar-
efni, svifefni, vítamín, beiskjuefni,
stera, lífhvata, hormón o.fl. Meðal
þeirra fjölbreyttu mæliaðferða sem
þá var beitt í örum framförum líf-
efnarannsókna eru einnig margar
sem hafa ekki verið taldar hér en
nýttu ljósskautun á einhvern hátt til
þess að kanna lögun og byggingu
stórra sameinda. Af þeim aðferðum
má nefna: dreifingu ljóss þar sem
tíðni þess breyttist um leið (Raman-
hrif), breytileika optískrar virkni
efna við mismunandi tíðni ljóssins,
dofnun skautaðs ljóss í sumum
efnum (Cotton-hrif), skautaða
flúrljómun og tvöfalt ljósbrot í
vökvum af völdum rennslis-
hreyfinga (Maxwell-hrif). Allt þetta
leiddi síðan til enn annarra merkra
uppgötvana og framfara sem
mannkynið býr að í dag.
SUMMARY
On some applications of Iceland
spar prisms in biological sciences
and medicine
From the 17th century until around
1900, a quarry at the farm Helgu-
staðir in East Iceland was the
world's only source of large trans-
parent crystals of Iceland spar (opti-
cal calcite) for scientific research.
Organized mining for export took
place there intermittently between
1850 and 1925. These crystals were
chiefly used in the construction of
so-called Nicol prisms, which were
incorporated into instruments
employing polarized light for vari-
ous purposes. In particular, three
types of these instruments were
manufactured commercially: polar-
imeters, petrographic microscopes,
and photometers (also including
spectrophotometers and to a lesser
extent colorimeters and chromo-
scopes). The paper describes how
they were used in research within
various fields of organic chemistry,
biochemistry, biology, food science
and medicine during the above
period. Several important discover-
ies and their consequences are men-
tioned. As the Iceland spar crystals
also contributed to progress in
various other fields of science and
technology, it is evident that the
Helgustaðir calcite quarry has
played a significant role in global
history.
46