Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2008, Page 49

Náttúrufræðingurinn - 2008, Page 49
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Örnólfur Thorlacius RISAEÐLURÁ FERÐ OG FLUGI Á nítjándu öld fóru menn víða að rekast á steingerð bein úr gríðarstórum landdýrum, og árið 1842 gaf þekktur enskur líffæra- og steingervingafræð- ingur, Sir Richard Owen, þeim fræðiheitið Dinosauria sem nánast útleggst „eðlurnar skelfilegu". Á íslensku eru dýrin kölluð risaeðlur. Þessi stóru skriðdýr lifðu á landi, ólíkt ýmsum stórvöxnum skriðdýrum í sjó (1. mynd). Flugeðlurnar, sem margar voru líka næsta stórar, voru ekki heldur eiginlegar risaeðlur (2. mynd). Raunar risu risaeðlurnar ekki allar undir nafni. Hinar minnstu urðu víst ekki stærri en skógarþröstur. óðum að bætast við þekking um ýmislegt í fari dýranna, svo sem hörund og aðra mjúka hluta þeirra, líkamsstöðu og hreyfimáta, vaxtar- hætti og vaxtarhraða, lífshætti þeirra, svo sem fæðuöflun og fæðu- val, og um samskipti innan og milli tegunda. Sú mynd sem við höfum Til skamms tíma miðuðust hug- myndir manna um eðli og lífshætti risaeðlnanna við reynslu af núlifandi stórskriðdýrum, svo sem krókódíl- um og stærstu eðlum. Þannig sjást risaeðlur oft á gömlum myndum með útstæða fótleggi, allt að því dragandi kviðinn og halann, þótt ljóst mætti vera af gerð mjaðmar- og axlarliðanna að skepnurnar hafi risið upp á lóðrétta ganglimi og glöggur athugandi sem skoðaði slóð eftir risaeðlu tók eftir því að sú skepna hlýtur að hafa borið nokkuð bratt halann, því hvergi sást far eftir hann. Öll núlifandi skriðdýr eru misheit („með kalt blóð") og þar með háð hita umhverfisins um hraða efna- skiptanna, enda fer mest fyrir þess- um dýrum þar sem hlýtt er. Gerðu menn lengi ráð fyrir að hið sama ætti við um aldauða frændur þeirra, risaeðlurnar, sem verið hefðu stirð- busaleg og svifasein kvikindi, og trúlega hefðu kvikari og skarpari jafnheit dýr, spendýrin, átt veru- legan þátt í að útrýma þeim. Á síðustu áratugum 20. aldar fór þessi mynd að breytast, enda er 1. mynd. Ýmis stór hyggdýr í sjó, sem öndnðu með hmgum, töldust ekki risaeðlur. Á mynd- inni sjást, talið að ofan, goggeðla, Placodus, um 1 m löng, frá miðtrías; svaneðla, Cryptoclodus,^rrí síðjúra, um 3 m; ogfiskeðla, Opthalamosaurus,yní síðjúra, um 2,5 m.' Náttúrufræðingurinn 76 (1-2), bls. 49-62, 2007 49

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.