Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 64

Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 64
Náttúrufræðingurinn um landið í mismiklu umfangi (1. mynd). Hér á eftir verður fjallað um ræktun kræklings á Islandi, aðferðir við ræktun og helstu atriði er hafa áhrif á ræktunina. Byggt er á þeim niðurstöðum sem fengist hafa úr áðurnefndum tilraunaverkefnum víðsvegar um landið. LÍFSFERILL OG RÆKTUN Kræklingur er auðveldur í ræktun þar sem lífsferill hans er tiltölulega einfaldur og einnig býr hann yfir ýmsum eiginleikum sem auðvelda ræktun (2. mynd). í upphafi rækt- unar er lirfum safnað úti í náttúr- unni en ræktun ýmissa annarra skeljategunda krefst lirfuræktar í upphafi. Kræklingurinn er sér- kynja, hrygnir á fyrsta aldursári og eggin frjóvgast í sjónum. Hrygning- artíminn er mismunandi á milli svæða og ára og fer aðallega eftir fæðuframboði og hita sjávar. Kræk- lingurinn hrygnir að vori eða sumri þegar næga fæðu er að hafa fyrir ungviðið í formi svifþörunga. Rannsóknir hafa sýnt að í Mjóafirði árið 2000 og í Breiðafirði árin 1995-1997 hófst hrygning í júlí, náði hámarki í ágúst og lauk í nóvem- ber.7 í Hvalfirði var aðalhrygningar- tíminn árið 1986 frá miðjum júlí fram í miðjan ágúst en árið 1987 frá miðjum júní til júlíloka.6 Úr frjóvguðum eggjum kræklings þroskast lirfur sem eru sviflægar fyrstu vikurnar og nærast á smáum svifþörungum sem þær sía úr sjón- um. Lirfurnar myndbreytast og þunn gagnsæ skel myndast fljót- lega. Að loknu sviflæga tímabili lirfunnar leitar hún uppi ákjósan- legt undirlag til að setjast á og er hún þá um 0,25 mm að lengd. Lengd lirfustigs getur verið breyti- leg á milli svæða og ára og fer eftir fæðuframboði og ytri skilyrðum. Ef undirlag hentar ekki fyrir ásetu kræklingslirfunnar framlengist svif- læga tímabilið um nokkra mánuði.8 Lirfan sest gjarnan á þráðlaga þör- unga en einnig er algengt að hún setjist á spunaþræði eldri kræk- lings. í Hvalfirði árið 1987 voru kræk- lingalirfur sviflægar í 4-5 vikur og var aðalásetan á safnara í septem- ber.6 Á árunum 2000-2002 var megináseta kræklingslirfa í Hval- firði í ágúst,910 eða örfáum vikum fyrr en árið 1986. Aðalásetutími kræklingslirfa á safnara í Eyjafirði árið 1999 var einnig í september11 en við Hrísey árið 2004 í byrjun ágúst.12 Aðalkosturinn við kræklinga- ræktina er sá að ekki þarf að fóðra kræklinginn því hann síar alla fæðu sína úr sjónum. Fæða kræklings samanstendur af örsmáum ögnum sem geta verið plöntusvif, bakterí- ur, dýrasvif eða mismikið niður- brotnar lífrænar leifar, svokölluð feyra (detritus).13 Fæðan færist í átt að munni dýrsins sem er framan til. Á leiðinni frá tálknum að munni skiljast ákveðnir stærðarflokkar fæðunnar út úr dýrinu og ná aldrei munni. Vöxtur kræklings fer einkum eftir aldri, stærð, erfðum, þéttleika dýr- anna, hita, fæðuframboði, seltu og árferði.13 Við lægri hita en 3 °C vex kræklingur mjög hægt en vöxturinn eykst með hækkandi hita, allt þar til fer að draga úr honum við um það bil við 20 °C. Verulegur munur er á vaxtarhraða kræklinga við íslands- strendur. Vöxturinn er mestur við vestanvert landið en minnkar rétt- sælis með landinu og er minnstur á Austfjörðum. í Hvalfirði er kræk- lingur um tvö ár að ná 50 mm lengd6 en gera má ráð fyrir að það taki a.m.k. þrjú ár á Austfjörðum.14 Þessar vaxtartölur miðast við að engin grisjun hafi átt sér stað yfir ræktunartímabilið en gera má ráð fyrir meiri vexti ef kræklingurinn er grisjaður. Verulegur munur getur verið á vexti eftir árferði og einnig getur of þétt ræktun dregið úr vaxt- arhraðanum. Kræklingurinn vex hratt í fyrstu og við bestu skilyrði nær hann um 15 mm lengd á fyrsta ári í ræktun.15 Við náttúruleg skil- yrði vex kræklingur við Island um u.þ.b. 10 mm á ári í 3-4 ár en síðan dregur úr vexti hans!6 Við bestu skilyrði getur vöxturinn þó verið Lirfusafnarar 2. mynd. Lífsferill kræklings. - The life cycle ofblue mussel (Mytilus edulis). 64

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.