Náttúrufræðingurinn - 2008, Page 70
Náttúrufræðingurinn
Arni Hjartarson
NORÐURHEIMSKAUTS-
BAUGURINN í GRÍMSEY
íslensk skólaböm læra snemma að heimskautsbaugurinn liggur skammt
fyrir norðan land og þvert yfir Grímsey. Sagt var að hann lægi langsum eftir
hjónarúminu á prestssetrinu í Miðgörðum og að prestur lægi norðan baugs-
ins en maddaman sunnan hans. Þetta á að vísu ekki við í dag því prestssetur
er ekki lengur í Grímsey og baugurinn er nokkuð norðan Miðgarða eða í
grennd við Bása, ysta bæirtn á eynni. Málið vandast hins vegar þegar benda
skal nákvæmlega á legu þessarar ímynduðu línu á yfirborði jarðar. Skammt
norðan við bæinn að Básum er varði sem merkir þennan stað (1. mynd); þar
láta ferðalangar ljósmynda sig og fá síðan áritað skjal til staðfestingar því að
þeir hafi stigið niður fæti norðan við heimskautsbaug. Þeir sem nota GPS-
tæki og eru vel að sér í landafræði geta þó séð að staðsetning varðans er ekki
nákvæm og að baugurinn muni liggja nokkru norðar.
Hvar ER BAUGURINN?
En hvar á að draga heimskauts-
bauginn og hvað táknar hann? Sam-
kvæmt aldagömlum skilgreiningum
afmarkar hann það svæði á norður-
hveli jarðar þar sem sólin (eða rétt-
ara sagt sólmiðjan) getur horfið
undir sjóndeildarhringinn í heilan
sólarhring eða lengur að vetrinum
en getur þá jafnframt verið sýnileg
heilan sólarhring eða lengur að
sumrinu, þannig að sjá megi mið-
nætursól.1 Sams konar baugur, suð-
urheimskautsbaugurinn, er á suður-
hvelinu. Skilgreiningin sýnist ein-
föld en margt flækir málið. Fólk víða
á Norðurlandi getur borið vitni um
það að sólin hverfur ekki undir sjón-
arrönd dögum saman kringum
sumarsólstöður. Ástæðan fyrir
þessu er sú að skilgreining baugsins
miðast við að athugandinn sé við
sjávarmál og tekur ekki tillit til ljós-
brots í gufuhvolfi jarðar. Ljósbrotið
veldur því að miðnætursól getur
sést tugi kílómetra sunnan heim-
skautsbaugs og raunar yfir 100 km
ef farið er til fjalla.
Það er möndulhalli jarðar sem
ræður legu heimskautsbaugsins.
Snúningsmöndull jarðar liggur ekki
1. mynd. Merkið við heimskautsbauginn, bærinn að Básum og flugstöðin í baksýn.
70
Náttúrufræðingurinn 76 (1-2), bls. 70-72, 2007