Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 71
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
hornrétt á brautarflöt hennar.
Honum hallar og hornið milli hans
og jarðbrautarflatarins er nálægt
66°33,5'. Baugurinn er því á 66°33,5'
norðlægrar breiddar. Þetta horn er
þó ekki stöðugt heldur tekur það
hægfara breytingum og er ýmist að
vaxa eða minnka og sveiflast á milli
hámarks og lágmarks á um 20.000
árum. A síðustu ármilljónum hefur
hornið mest orðið 68° en minnst
65,5°. Mismunurinn er 2,5° og sam-
kvæmt þeirri þekktu reglu að hver
lengdarmínúta jafngildi einni sjó-
mílu má ljóst vera að baugurinn
getur flust til um 150 sjómílur frá
norðri til suðurs. Sem stendur fer
hornið vaxandi en það veldur því
að baugurinn færist til norðurs um
15 m á ári. Þetta er margfalt meiri
tilfærsla en verður við hægfara jarð-
skorpuhreyfingar eins og til dæmis
landrek. Fleiri þættir koma hér við
sögu, þar á meðal hin svokallaða
pólriða (nutation) sem veldur
sveiflu frá hámarki til lágmarks á
rúmum 9 árum og flytur bauginn til
um hátt í 300 m á sama tíma og síð-
an til baka á ný á næstu 9 árum. Enn
fleiri atriði flækja þetta mál. Hreyf-
ing heimskautsbaugsins er því ekki
jöfn frá einum tíma til annars held-
ur rykkjótt og skrykkjótt. Ekki er
hægt að segja nákvæmlega fyrir um
hana í smáatriðum því hafstraumar,
iðustraumar í iðrum jarðar og jafn-
vel stórir jarðskjálftar geta haft áhrif
þótt í litlu sé. Þó er ljóst að norður-
heimskautsbaugurinn lá eitt sinn
um hjónarúmið í Miðgörðum en er
nú kominn norður undir Eyjarfót
og fer norður af eynni fyrir næstu
aldamót.
ÚRSÖGU BAUGSINS
Hið landfræðilega hugtak heim-
skautsbaugur er komið frá Forn-
grikkjum. Þeir skilgreindu einnig
hvarfbaugana og miðbaug. Baugar
þessir teljast mikilvægustu breidd-
arbaugar heimskortsins og þeir af-
marka loftslagsbelti jarðar, hitabelt-
ið, tempruðu beltin og heimskauta-
beltin. Ekki er höfundi þessara lína
kunnugt um hvenær íslendingar til-
einkuðu sér þessi fræði en í íslands-
lýsingu Odds biskups Einarssonar
frá um 1580 er getið um heim-
skautsbauginn og hann sagður
norðan íslands.2
Eins og fram hefur komið er eng-
inn hægðarleikur að marka þennan
baug nákvæmlega á yfirborð jarðar
með grannri línu eða annars konar
merki og margir kortagerðarmenn
voru, og eru enn, tregir til að draga
hann inn á kort sín. Guðbrandur
biskup Þorláksson gerði uppkast að
fyrsta íslandskorti sem sýnir
nokkurn veginn rétta lögun lands-
ins. Það uppkast er löngu týnt en
hollensku kortagerðarmennirnir
Ortelius og Mercator hreinteiknuðu
það og gáfu síðan út hvor sína gerð-
ina af því.3 Hvorugur þeirra sýnir
heimskautsbauginn. A kortgerð
Mercators stendur hins vegar skrif-
að rétt sunnan Mývatns: „Hier Ikin
natsell sunnazt", þ.e. Hér skín nátt-
sól sunnast. Af gráðumerkingum á
kortjöðrum má sjá að þarna taldi
hann að baugurinn lægi. Hann
hefur því hvorki gert leiðréttingar
vegna ljósbrots né landhæðar. A
síðari gerðum kortsins, sem gefnar
voru út í kortasöfnum í Evrópu, sést
baugurinn stundum markaður
einmitt þar sem þessi athugasemd
stóð, þ.e. um norðanvert Island (2.
mynd). Guðbrandur virðist hafa
mælt hnattstöðu Hóla í Hjaltadal
eftir að kort hans var gefið út (eða
a.m.k. eftir að hann sendi korthand-
ritið frá sér). Þá fann hann út að
breiddarstig biskupssetursins var
65°44'.4 Þar með komst hann að því
að heimskautsbaugurinn lá í raun
skammt norðan landsins. Þessa
staðreynd sýnir Þórður Þorláksson
á kortum sínum frá 1668 og 1670.
Þar er Grímsey sýnd nokkurn veg-
inn á réttri breiddargráðu og á síð-
arnefnda kortinu er heimskauts-
baugurinn teiknaður á 66°30'.2
2. mynd. íslandskort byggt á korti Guðbrands Þorlákssonar eftir hollenska kortagerðar-
manninn Joris Carolus sem kom til íslands 1625. Kort þetta fékk meiri xitbreiðsiu en
nokkurt annað íslandskort á sinni tíð og erfyrirmynd margra annarra kortafrá 17. öld.
Carolus merkir hér heimskautsbauginn (Circulus Arcticus) kirfilega með tvöfaldri Unu
þvert yfir landið, en á upprunalegu korti Guðbrands í útgáfum Orteliusar og Mercators
er hann ekki sýndur. (Myndin erfengin af vefsíðu Landsbókasafns-Háskólabókasafris.)
71