Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 77
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Davíð Gíslason
NÁTTÚ RU STO FA ÁU STU RLAN D S
1. mynd. Gróðurrannsóknir í Kringilsárrana 2006. F.v. Guðrún Á. Jónsdóttir og Kristín Ágústsdóttir. Ljósm.: Skarphéðinn G. Þórisson.
jfr i 1
y r 41
Náttúrustofa Austurlands var stofn-
uð 1995 og er því elsta náttúrustofa
landsins. Stofan er rekin af Fjarða-
byggð samkvæmt samningi við
umhverfisráðuneytið. Starfsstöðvar
hennar eru tvær, önnur í fræðasetr-
inu Búlandi í Neskaupstað en þar
eru einnig til húsa Verkmenntaskóli
Austurlands, Matís og Fiskistofa.
Hin starfsstöðin er á Egilsstöðum í
húsnæði Skógræktar ríkisins.
Meginhlutverk stofunnar er að rann-
saka náttúru Austurlands. Þar ber
helst að nefna rannsóknir á íslenska
hreindýrastofninum og á náttúru-
fari, einkum gróðri og fuglum. Sem
dæmi um verkefni má nefna gróður-
kortlagningu og skráningu fugla og
plantna vegna mats á umhverfisá-
hrifum ýmissa framkvæmda, vökt-
un á gróðri og öðrum umhverfis-
þáttum vegna álvers Alcoa-Fjarðaáls
í Reyðarfirði, umsjón með sýningar-
sal Náttúrugripasafnsins í Neskaup-
stað og umsjón með Fólkvangi Nes-
kaupstaðar. Síðast en ekki síst er eitt
af hlutverkum stofunnar að fræða al-
menning um náttúru Austurlands.
Auk aðildar að fræðasetrinu
Búlandi er stofan aðili að Þekkingar-
neti Austurlands og samstarfsfélagi í
þekkingarsetrinu Vonarlandi á
Egilsstöðum.
Starfsmenn Náttúrustofunnar eru
átta í um fimm stöðugildum auk
sumarstarfsfólks. í Neskaupstað eru
fimm starfsmenn. Davíð Gíslason
dýrafræðingur hefur verið forstöðu-
maður stofunnar frá sumarbyrjun
2007 er hann tók við af Guðrúnu Á.
Jónsdóttur plöntuvistfræðingi sem
hafði stýrt stofunni frá stofnun
hennar. Davíð hefur starfað í
Kanada síðustu árin, að mestu við
stofnerfðafræðirannsóknir og þá sér-
staklega rannsóknir á afbrigðum og
tegundamyndun bleikju í íslenskum
vötnum. Áður starfaði hann hjá Haf-
rannsóknastofnuninni við stofn-
gerðarannsóknir á karfa og hrefnu-
rannsóknir.
Kristín Ágústsdóttir landfræðing-
ur hefur starfað við stofuna síðan
1999. Hún sinnir rannsóknum á
náttúrufari, gróðurkortlagningu og
kortagerð í tengslum við mat á um-
hverfisáhrifum ýmissa fram-
kvæmda. Þá stjórnar Kristín um-
hverfisvöktun vegna álvers Alcoa-
Fjarðaáls í Reyðarfirði.
77