Náttúrufræðingurinn - 1996, Page 20
Það sem er rangt að mínum dómi er bók-
stafstrúin sem fylgir og býr til Stóra sann-
leik.
12. Hver er hugmynd þín um
ÞAÐ HVERNIG VIÐ EIGUM AÐ
TAKAST Á VIÐ NÚVERANDl
MENGUN, S.S.
GRÓÐURHÚSAÁHRIF, SÚRT REGN,
ÓSONLAGIÐ O. S. FRV. ?
Ég held að mengun sé eðlileg. Allir eru á
einu máli um að það þurfi sameiginlegt
átak til að sporna við henni. Andstætt
viðhorfum flestra tel ég að það sé einhver
vonlaus barnaskapur í þessum vel meintu
yfirlýsingum „við verðum að reyna að
draga úr menguninni". í staðinn ættum við
að reyna að skilja hvers vegna við eigum
svona hrikalega erfitt með að vinna saman
að þessum málum. Þessir erfiðleikar eru
ekki eingöngu menningarlegt fyrirbæri eins
og þeir halda sem lýsa þessum vel meintu
skoðunum. Innst inni á þetta sér líffræði-
lega skýringu sem er öllu auðveldara að
skilja en að gangast við. Ég legg til að við
reynum að skilja og viðurkenna að líffræði
hegðunar okkar er enn á þróunarstigi og
það tel ég nauðsynlega forsendu þess að við
leysum mengunarvandann. Þegar það tekst
eygi ég von um úrlausn.
13. Hvert finnst þér að
HLUTVERK LISTA EIGI AÐ VERA í
VESTRÆNNI
SAM TÍMAM ENNINGU?
Kannski bara eins og það er. Listin er nyt-
samleg og vísindin líka. Og margt fleira,
t.d. landbúnaður. Það sem mér fellur vel
við að leggja stund á listina er að af öllum
mögulegum starfsgreinum er hún síst skil-
greind. Maður getur nánast gert hvað sem
er sem listamaður. Það býður upp á þess-
konar tilraunastarfsemi sem ég tel nytsam-
lega.
14. Hverskonar líf mundir þú
VILJA SJÁ Á NÆSTU ÖLD?
Ég vildi sjá varðveitast eins mikið og hægt
er af þeim lífsformum sem nú finnast. Ég
elska dýr, plöntur, sveppi, gerla og menn.
15. Lítur þú á þíg sem hluta af
NÁTTÚRUNNI?
Tvímælalaust. Menningin er hluti af náttúr-
unni, ekki eitthvað andstætt henni.
16. Hver er tilgangurinn með
TILVERU ÞINNI?
Þegar á heildina er litið er tilgangur lífsins
sá sami fyrir allar lifandi verur: Að ílytja
erfðavísa sína yfir til næstu kynslóða. Til
þess erum við til. Það er enginn Guð og
engin skynsemi. Aðeins eftirlíkingarlög-
mál. Þetta lögmál hefur leyft meðvitund-
inni að þróast hjá mönnum en meðvitundin
hefur getað aðlagast og þróast. Og hún
gerir það enn. Eigi að síður held ég að það
sé kominn tími til að hætta þessari líkam-
legu endursköpun, a.m.k. fyrir sum okkar.
Ég mæli með endursköpun góðra hug-
mynda.
17. Hvert er hlutverk
MENNINGARINNAR (AFSKIPTA
MANNSINS AF NÁTTÚRUNNl) í
TENGSLUM VIÐ LÍFSANDÁNN?
Lestu „Um mannlegt eðli“ eftir E.O. Wil-
son. Hann á frábær svör við þessari spurn-
ingu.
18. Hver er megintilgangur lífs
OKKAR?
Sjá 16.
19. Er Guð til?
Nei. Sjá 16.
20. Hver er framtíð lífsins í
ALHEIMINUM?
Framvindan.
21. Hvert er eðli alheimsins?
Ég veit það ekki. Kannski eðlisfræðin.
18