Náttúrufræðingurinn - 1996, Síða 36
Guðmundur Páll Ólafsson
HLÝTUR VIÐURKENNINGU
HAGÞENKIS 1995
Undanf'arin ár hefur Hagþenkir, sem er
félag höfunda fræðirita og kennslugagna,
veitt viðurkenningu fyrir framúrskarandi
fræðistörf og samningu fræðirita og
námsefnis. Sérstakt viðurkenningarráð,
skipað fulltrúum ólfkra fræðigreina og
kosið til tveggja ára í senn, ákveður hver
viðurkenninguna hlýtur. Viðtakandi fær
viðurkenningarskjal og fjárhæð sem er nú
300.000 kr.
Viðurkcnningu Hagþenkis 1995 hlaut
Guðmundur Páll Olafsson fyrir stórvirki
sem birtist í þremur bókum sem út hafa
komið á undanförnum níu árum. Þær eru
Fuglar í náttúru Islands sem út kom 1987,
Perlur í náttúru Islands frá 1990 og
Ströndin í náttúru Islands sem út kom
síðastliðið sumar. Bækurnar eru gefnar út
af Máli og menningu og framleiddar í
Prentsmiðjunni Odda.
Fréttir
\r
I greinargerð Viðurkenningarráðs Hag-
þenkis er fjallað um margþætta kosti og
eiginleika bókanna þriggja, fræðilegt,
fagurfræðilegt og uppeldislegt gildi þeirra.
Þar segir m.a.:
„Stórverkin þrjú eiga það sammerkt að
listrænt auga hefur ráðið myndgerð og
fræðilegur texti, alþýðufróðleikur og
skáldskapur hjálpast að við að gera bæk-
urnar að fjársjóðum.“
„Vinnubrögð höfundar eru athyglisverð
því hann nær að flétta saman efni af marg-
víslegum toga af miklu listfengi. Ur sam-
spili texta sem fengnir eru úr ýmsum áttum
verður mögnuð symfónía. Ljóð og
þjóðfræði mynda samspil og leika undir
við fræðilegan texta.“
„Við höfum fengið í hendur stórbrotin
verk þar sem efninu er sýnd umhyggja og
Guðmundur Páll Ólafsson tekur við viðurkenningunni úr hendi Hjalti Hugasonar for-
manns Hagþenkis við athöfn sem fram fór í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 12. janúar sl.
34