Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 38
Skaðlegt pilluát
Hinn 18. janúar sl. birtu rannsóknastofn-
anir heilbrigðismála í Bandaríkjunum (Na-
tional Institute of Health, NIH) skýrslu um
áhrif neyslu A-vítamíns og betakarótens
(sem líkaminn breytir í A-vftamín) á
heilsu manna. Bæði þessi efni hafa verið
talin vemda fólk gegn lungnakrabbameini.
Skýrslan studdist við tvær rannsóknir. í
annarri, sem hófst fyrir tólf árum, voru
þátttakendur 22.071 bandarískur læknir,
allt karlar. Hin rannsóknin, sem staðið
hefur yfir í ein sjö ár, tók til 18.431 manns
af báðum kynjum í áhættuhópum varðandi
lungnakrabba, til dæmis vegna reykinga
eða snertingar við asbest.
I báðum rannsóknunum var þátttakend-
um skipt í tvo hópa og fékk annar pillur
með A-vítamíni og betakaróteni en hinn
óvirkar töflur, eins í útliti.
í síðari rannsókninni reyndist fólkið sem
fékk þóknunarlyfið (óvirku töflurnar)
betur sett en vítamínneytendurnir. I við-
miðunarhópnum fengu 28% færri lungna-
krabbamein en fólkið sem fékk vítamínið.
Þar við bættist að dánartala af öllum
orsökum var 17% hærri hjá vítamín-
ætunum og af þeim létust 26% fleiri af
hjarta- og æðasjúkdómum.
Meðal læknanna, sem almennt voru
■. .........................................................................-................................... í/
Fréttir
hraustari en fólkið í hinni rannsókninni,
greindist ekki marktækur munur á heilsu-
fari hópanna.
Svipuð niðurstaða fékkst úr könnun á
nærri 30.000 körlum í Finnlandi sem birt
var 1994. Af þeim sem tóku betakaróten-
töflur í fimm til átta ár fengu 18% fleiri
lungnakrabba og dánartalan var 8% hærri
en í viðmiðunarhópi sem fékk óvirkar
pillur.
Ekki þurfa menn samt að sneiða hjá
ferskjum, gulrótum og öðrum karóten-
ríkum fæðutegundum af heilsufarsástæð-
um. Richard Klausner, forstöðumaður
krabbameinsrannsóknastöðvar NIH, bend-
ir á að fólk sem neytir mikils af beta-
karóteni í grænmeti og ávöxtum virðist
síður en aðrir síkjast af krabbameini og sér
í lagi lungnakrabba. Þetta hefur einmitt
orðið kveikjan að þeim könnunum sem hér
hefur verið getið um. Að mati Klausners
hljóta önnur og óþekkt næringarefni í
náttúrlegu fæðunni að vinna með A-
vítamíni gegn sjúkdómnum.
The Economist, 338/7950 27.1.96
Örnólfur Thorlacius tók saman.
36