Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 51
Háskóla íslands fyrir lán á húsnæöi og sér-
staklega Jóni Kristjánssyni húsverði í
Odda fyrir einstaka lipurö og hjálpsemi.
FERÐIR OG NÁMSKEIÐ
Á árinu var alls farið í 8 ferðir á vegum
félagsins, 7 dagsferðir og eina fjögurra
daga ferð. Auk þess gekkst félagið fyrir
námskeiði í greiningu matsveppa. Þátttak-
endur í ferðunum urðu 430 og eru það
einnig mun fleiri en oftast áður. Sjálfsagt
hjálpuðu veðurguðirnir til en veður var
yfirleitt ágætt.
1. Fyrsta ferðin var fuglaskoðunarferð
17. maí, en hún var nokkuð með öðru
sniði en áður þar sem áhersla var lögð á
að fylgjast með atferli ýmissa vaðfugla og
anda. Haldið var að Ástjörn og Hvaleyr-
arlóni en leiðsögumenn voru Hrefna Sig-
urjónsdóttir og Hlynur Óskarsson. Þátt-
takendur voru 19.
2. Síðastliðið sumar var ákveðið að
bjóða félagsmönnum að kynnast rann-
sóknum íslenskra náttúruvísindamanna úti
í náttúrunni. Fyrsta ferðin var 14. júní, en
þá kynntu Sigurður Snorrason og Skúli
Skúlason rannsóknir sínar á bleikjunni í
Þingvallavatni og gafst þátttakendum m.a.
tækifæri til að sjá þær fjórar gerðir bleikju
sem f vatninu lifa. Þátttakendur voru 33.
3. Þann 28. júní var farið í gönguferð
um 15 km leið frá Trölladyngju til Krísu-
víkur og skoðaðar eldstöðvar, hraun, mó-
bergsfjöll, sprungur, gjár og jarðhitasvæði
undir leiðsögn Sigmundar Einarssonar.
Þátttakendur voru 42.
4. Grasnytjaferð var 5. júlí og var safn-
að ýmsum tejurtum og jurtum til matar og
litunar. Fyrst var farið í grasagarðinn í
Laugardal, síðan ekið út á Reykjanes og
fanga leitað á nokkrum stöðum. Leiðsögu-
maður var Eva Guðný Þorvaldsdóttir.
Þátttakendur voru 69.
5. Sveppanámskeið var haldið eins og
undanfarin ár og farið í sveppatínsluferð í
Skorradal 23. ágúst. Leiðbeinandi var
Eiríkur Jensson. Fjöldi þátttakenda á
námskeiðinu var takmarkaður við 25, en í
ferðina komu alls 45 manns.
6. Jarðfræðiferð var farin að Þingvalla-
vatni 27. september undir leiðsögn Krist-
jáns Sæmundssonar sem sagði frá jarðsögu
Þingvallavatns og næsta umhverfis. Þátt-
takendur voru 50.
7. Til stuðnings tilraunum Landgræðsl-
unnar, Skógræktar ríkisins og Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins með uppgræðslu
lands með íslensku birki, efndi Hið ís-
lenska náttúrufræðifélag til ferðar til að
tína birkifræ 4. október. Farið var á Þing-
völl og fararstjórar voru Andrés Arnalds
og Þóra Ellen Þórhallsdóttir. Veður var
heldur leiðinlegt en í ferðina komu 25
manns.
8. Langa ferðin í Skaftafell 9.-12. júlí.
Alls var farið á fjórum bílum og voru leið-
sögumenn í bílunum þeir Jón Jónsson
jarðfræðingur, Kristinn Haukur Skarphéð-
insson líffræðingur og jarðfræðingarnir
Páll Einarsson og Þorleifur Einarsson.
Fararstjóri var Þóra Ellen Þórhallsdóttir
grasafræðingur. Lagt af stað kl. 9 á
fimmtudagsmorgni og ekið austur í Mýr-
dal. Þar slóst Einar H. Einarsson á
Skammadalshóli með í hópinn og sagði frá
Kötlugosum og Kötluhlaupum meðan
matast var í Hjörleifshöfða. Aftur var áð
hjá Villingshóli og þar sagði Jón Jónsson
frá Skaftáreldum. Gist var á tjaldstæðinu í
þjóðgarðinum í Skaftafelli.
Daginn eftir gengu 50 manns í Bæjar-
staðarskóg með Eyþóri Einarssyni grasa-
fræðingi og Kristni Hauki Skarphéðins-
syni. Meginhluti hópsins gekk fyrst að
Sjónarskeri þar sem Ragnar Stefánsson,
bóndi og þjóðgarðsvörður í Skaftafelli,
sagði deili á fjöllum og örnefnum sem
blöstu við í ágætu skyggni. Einnig var
Svartifoss skoðaður og leyfi fékkst til að
skoða gamla bæinn í Seli sem nú er verið
að breyta í minjasafn og þar rakti Ragnar
ýmislegt úr sögu Skaftafells. Eftir hádegi
var ekið að Svínafelli. Þorleifur Einarsson
sagði frá steingervingalögunum þar og
fólk spreytti sig á að greina blaðförin sem
fundust. Þaðan var haldið að útfalli Skeið-
arár og loks skoðuð dauðísker framan við
Skeiðarárjökul með Þorleifi Einarssyni.
Um kvöldið var kvöldvaka og greint frá
úrslitum í veðurspárkeppni.
Á laugardeginum var haldið í sólskini
og hlýju veðri austur á Breiðamerkursand
225