Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 53
tekur Páll Imsland jarðfræðingur og býður
stjórnin hann velkominn til starfa.
Sala á veggspjöldum félagsins hefur ver-
ið góð og var flóruspjaldið uppselt síðast-
liðið vor. Þaö var endurprentað í 2000 ein-
tökum.
NEFND UM BYGGINGU NÁTTÚRU-
FRÆÐIHÚSS
Eins og kunnugt er, skipaði mennta-
málaráðherra nefnd 18. september 1985 til
að fjalla um tilhögun og uppbyggingu nátt-
úrufræðihúss. Pað var eitt aðal markmiðið
með stofnun Hins íslenska náttúrufræðifé-
lags árið 1889 að koma upp veglegu nátt-
úrufræðihúsi. Félagið gaf ríkinu safnið ár-
ið 1947 með því skilyrði að byggt yrði yfir
það. Ágúst H. Bjarnason, þáverandi for-
maður félagsins, átti sæti í þessari nefnd.
Hún skilaði áliti 7. desember sl. Þann 12.
janúar barst félaginu bréf frá menntamála-
ráðherra þar sem óskað er eftir umsögn
félagsins um álit nefndar um byggingu
náttúrufræðihúss. Stjórnin fjallaði um
þetta mál á tveimur fundum og í bréfi til
menntamálaráðherra var tekið undir álit
meirihluta nefndarinnar og lýst þeirri ein-
dregnu ósk að búið verði að taka ákvörð-
un um byggingu náttúrufræðihúss fyrir
aldarafmæli félagsins árið 1989.
GJÖF HINS ÍSLENSKA NÁTTÚRU-
FRÆÐIFÉLAGS TIL RANNSÓKNA-
STÖÐVARINNAR VIÐ MÝVATN
Nýtt húsnæði Náttúrurannsóknastöðv-
arinnar við Mývatn var formlega tekið í
notkun 13. júní sl., en stöðin er til húsa í
gamla prestsetrinu á Skútustöðum sem nú
hefur verið gert upp. Hlutverk stöðvarinn-
ar er að veita öllum þeim aðstöðu sem
vilja rannsaka náttúru Mývatns og um-
hverfis þess. Stjórn Hins íslenska náttúru-
fræðifélags ákvað að færa stöðinni að gjöf
af þessu tilefni 15 síðustu árganga Náttúru-
fræðingsins og veggspjöld félagsins. Rit-
stjóri Náttúrufræðingsins afhenti gjöfina,
en Náttúrufræðingurinn var merktur sér-
staklega sem gjöf frá félaginu. Stjórn fé-
lagsins hefur borist þakkarbréf frá for-
ntanni rannsóknastöðvarinnar.
ALDARAFMÆLI HINS ÍSLENSKA
NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAGS ÁRIÐ 1989
Eins og greint var frá á síðasta aðal-
fundi, hafði stjórnin þá hafið nokkurn
undirbúning að aldarafmæli félagsins. Á
síðasta aðalfundi var frá því greint að þess
hefði verið farið á leit við stjórn Pósts
og síma að gefið yrði út frímerki í til-
efni afmælisins. Þriggja manna nefnd fylg-
ir þessu máli eftir. Einnig var frá því
greint að ákveðið hefði verið að gangast
fyrir samkeppni um merki félagsins og
hefur nú verið skipuð þriggja manna dóm-
nefnd.
Stjórnin varð fljótlega sammála um að
útgáfa veglegs rits um íslenska náttúru
væri viðeigandi varða á þessum merka
áfanga í sögu félagsins. Eftir nokkra íhug-
un varð hún einnig einhuga um að gefa
skyldi út vandað og veglegt en jafnframt
aðgengilegt rit um náttúru Mývatnssveit-
ar. Kom margt til að það svæði var valið. í
fyrsta lagi er Mývatnssvæðið einstætt, og
það bæði hvað varðar jarðfræði og lífríki.
Ritið myndi því spanna mjög breitt svið;
jarðeðlisfræði, jarðfræði, grasafræði og
dýrafræði. í öðru lagi hafa verið gerðar
meiri rannsóknir þar en á flestum öðrum
svæðum á landinu, bæði á sviði jarðfræði
og líffræði. í þriðja lagi er ekki til neitt al-
mennt rit á íslensku um náttúru Mývatns
og myndi ritið því bæta úr brýnni þörf og
gera almenningi kleift að kynna sér þetta
stórbrotna svæði. í fjórða lagi taldi
stjórnin víst að eftirspurn yrði mikil eft-
ir vönduðu riti um Mývatn og gæti það
jafnvel orðið félaginu tekjulind er fram
liðu stundir, og einnip mætti þýða ritið á
erlend tungumál. Árni Einarsson og
Arnþór Garðarsson hafa verið ráðnir
ritstjórar. Efnisskipan bókarinnar liggur
fyrir. Þetta verður safnrit og hafa allir
væntanlegir höfundar nú samþykkt að
leggja fram efni. Stjórnin hyggst leita
stuðnings stofnana og fyrirtækja til að
styrkja útgáfuna. Stefnt er að útgáfu um
mitt ár 1989.
227