Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1964, Qupperneq 3

Náttúrufræðingurinn - 1964, Qupperneq 3
Náttúrufr. — 34. árgarigur — 2. hefti — 49.-96. siða — Reykjavík, júlí 1964 Steindór Steindórsson frá Hlöðum: Um ísaldarplöntur i. ÍSALÐARPLÖNTUR VIÐ EYJAFJÖRÐ í ritgerðinni „Gn the Age and Immigration of the Icelandic Flora“ 1962, færði ég líkur fyrir því, að á jökultíma hefðu verið auð svæði á nokkrum stöðum hér á landi, og að þar liefðu ýmsar plöntutegundir haldið velli í hörkum þess tíma. Forsendurnar voru útbreiðsla þessara tegunda, sem virtust þyrpast saman á nokk- ur, alls 6, svæði. Á svæðum þessum mega sumar þessara tegunda kallast algengar, en linnast naumast eða alls ekki utan þeirra. Lands- lagi á þessum svæðum er svo háttað, að jarðfræðingar töldu það benda til þess möguleika að fjöll og fjallgarðar og nokkuð niður eftir hlíðum hefði getað staðið upp úr jökulbreiðu ísaldarinnar, þótt jöklar hefðu skriðið þar út dali og firði. Fundarstaðir áður nefndra plantna utan þessara miðsvæða, sem ég nefndi svo, voru að öllum jafnaði á eða í námunda við einstök fjöll og tinda, sem ekki sýndist fráleitt, að hefðu getað staðið upp úr jökulbreiðunni. Niðurstaða athugana á þessu varð því sú, að áður nefndar mið- svæðaplöntur hefðu vaxið í landinu síðan fyrir jökultíma, og bor- i/,t til þess, rneðan jrað annaðtveggja var í landtengslum við megin- landið, eða a. m. k. jrað miklu stærra en nú, að flutningar plantna til landsins hefðu verið stórum mun greiðari en verið hefur eftir að jökultíma lauk. Tegundir jressar hefðu einangrast á umræddum svæðum og ekki náð að breiðast út síðan að nokkru ráði, nema um næsta nágrenni sitt. Það, sem einnig styður jressa skoðun, er að margar jjessara plantna eru harðgerðar tegundir, sem líkur eru

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.