Náttúrufræðingurinn - 1964, Qupperneq 17
NÁTTÚRUFUÆÐINGURINN
63
með eða móti. En geta má þess, í þessu sambandi, að ég hefi fundið
hvítstör uppi á Þórðarhöfða í Skagafirði, en ætla má að hann hafi
verið jökullaus á síðasta jökulskeiði. Þrjár tegundir, fjallakobbi
(Erigeron unijlorus), ljósadúnurt (Epilobium lactiflorum) og lauka-
steinbrjótur (Saxifraga cernua), eru svo dreifðar um allt héraðið,
að ekkert verður ráðið um afstöðu þeirra til eyjasvæðanna. Tvær
hinar síðarnefndu vaxa niður undir sjó, og eru ekki hátt til fjalla.
Litunarjafni (Lycopodium alpinum) virðist einkum algengur um
norðanvert héraðið inn til Höfðahverfis og Mi'iðruvalla. Minnir út-
breiðslusvæði lians nokkuð á sumar láglendistegundir, sem greini-
lega eru útbreiddari um ytri sveitir héraðsins. Loks eru fjórar teg-
undir, fjallanóra (Minuartia biflora), tröllastakkur (Pedicularis
flammea), jöklasóley (Ranunculus glacialis) og dvergsóley (R. pyg-
rnaeus), sem að vísu eru taldar um allt héraðið, en tala tilgreindra
fundarstaða bendir þó ótvírætt i þá átt, að þær séu miklu algeng-
astar á eyjunum.
Þegar vér þannig lítum á fjallaplönturnar sem heild, dylst ekki
að þær eru fyrst og fremst tengdar við jökuleyjarnar, og virðist þá
ekki önnur skýring líklegri, en þarna hafi þær verið staðbundnar
frá þeim tíma að svæði þessi einangruðust. Ef þær hefðu flutzt til
héraðsins eftir að alla jökla leysti af því, er að minnsta kosti erfitt
að finna, hversvegna þær hefðu einmitt sezt að á þessum fjallatind-
um en ekki öðrum, jrví að plöntur, sem komizt liefðu yfir íslands
haf hvort heldur svífandi í loíti, með fuglum eða flotið á sjó, hefðu
átt að vera býsna fljótar að dreifast um ekki stærra svæði en fjall-
lendið við Eyjafjörð. Mér virðist jrví útbreiðsla fjallaplantnanna,
vera hin ákjósanlegasta sönnun fyrir vetrarstöðu plantna á ísöld.
b. Láglendisplöntur. Meginútbreiðsla fyrir neðan 300 m. hæð.
1. Maríuvöttur (Alchemilla faeroénsis). 3 Nípá í Köldukinn. E 1.
2. Fjöllaufungur (Athyrium filix femina). Svarfaðardalur á I st. Botn
Héðinsfjarðar. U 2.
3. Mánajurt (Botrychium boreale). 1 Grímsnes. 14 Klængshóll. I(i
Reistará. Utan eyja: Kvíabekkur, Þóroddsstaðir 200 m. E 3. U 2.
4. Lensutungljurt (B. lanceolatum) (100—300 m). 1 Látrakleifar,
Eilífsárdalur, Sker. 2 Bjarnarfjall. 9 Karlsárdalur. 14 Klængshóll. 16 Reistarár-
fjall, Hofsfjall. 18 Barkárdalur. Utan eyja: Selland, Bleiksmýrardalur. E 9. U 2.
5. Bláklukka (Campanula rotundifolia) (100—300 m) .10 Brekka, Holts-
móar, Dalvík. 12 Syðri Másstaðir. 16 Þrastarhólsfjall, Möðruvellir. Utan eyja:
Hlaðir, Djúpárbakki, Vaðlaheiði. E 6. U 3.