Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1964, Qupperneq 32

Náttúrufræðingurinn - 1964, Qupperneq 32
78 NÁTTÚ RU F R.TÐ ING U RI N N undir höfuð leggjast að afla um það nánari upplýsinga. Oft hefur það viljað brenna við hér á landi, að það liafi gleymst, sem Danir gerðu til viðreisnar landinu, og sjálfsagt hefur það oft verið ærið fálmkennt. Hvað sem því líður, virðist það staðreynd að í þetta sinn var brugðið skjótt við og ráðstalanir gerðar, til þess að fá sem gleggstar upplýsingar um það, setn hafði skeð og um þörfina fyrir hjálp. jafnframt var og hafizt handa um að veita nauðsynlega aðstoð. Það kom í hlut Magnúsar Stephensen að takast á hendur ferð til íslands ásamt C. von Lewenthow og fara til eldsveitanna sjálfra, til Jress af eigin reynd að kynnast ástandinu þar meðal fólksins, en jafnframt fékk Magnús fyrirskipan um að rannsaka gosið sjálft frá náttúrufræðilegu sjónarmiði. Ekki er mér kunnugt um, að leiðangur haí'i áður verið gerður út af hendi hins opinbera til íslenzkra eld- stöðva gagngert til Jress að rannsaka gosið sjálft. Verður för Jreirra Magnúsar og Lewenthow því einnig af Jxám sökum að teljast hin merkilegasta. Að ferðin var ekki með sældinni út tekin má m. a. sjá af því, að ]x“ir félagar fóru frá Kaupmannahöfn 11. október 1783, urðu tvisvar afturreka til Noregs, máttu loks hafa Jrar vetursetu og komust ekki til íslands fyrr en 16. apríl 1784. Magnús var þá að- eins 21 árs að aldri. Austur á Síðu er Magnús kominn snemma í júlí Jrað sama sum- ar, og þann 16. júlí leggur liann upp í sína eiginlegu rannsóknar- för í leit að eldstöðvunum. Frásögn Magnúsar af Jressari ferð er stutt og dálítið ónákvæm, enda fór hann og fylgdarmenn hans ekki úr fötum allan þann tíma, sem Jreir voru á fjöllunum, en Jraðan komu Jreir aðfaranótt þess 18. júlí. Hagar fyrir hestana voru eng- ir á þessari leið og segir Magnús að 4—6 tommu Jrykkt öskulag liafi verið yfir allan Síðumannaafrétt, er hann fór þar um, og ekki liafi Jrar séð stingandi strá. Þeir Magnús fóru norður yfir Kaldbak, líklega austánverðan, og þaðan í Miklafell, en við austurhorn Jjess rann bið nýja hraun fram og féll alveg upp að fellinu. Þetta varð til þess, að Jjeir urðu að fara norður af Miklafelli í stað þess að fara inn með því að austan, eins og Jjeir virðast hafa ætlað. Milli Hnútu og Mikla- fells rann sá hluti Skaftáreldahrauns, sem féll niður um gljúfur Hverfisfljóts. Magnús getur Jjess lauslega, að enn sjái fyrir gljúfr- inu. Svo gerir ennþá og er það skammt vestan við Hnútu. Gljúfur

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.