Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 15

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 15
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 91 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 12. ágúst fóxu þúfutittlingarnir að hópa sig, og fór þeim að fækka úr því, og voru farnir 27. september. 13. ágúst sá -ég, að ég álít sama kjóann, sem ég hefi séð hér í tvö undanfarin sumur. Hann er einkennilega flekkóttur, og auðþekktur frá öðrum kjóum sömu tegundar. 23. ágúst sá ég síðast óðinshana. 26. ágúst sá ég eina tildru. Þær sá ég ekki oftar það ár. 2. septemb.er sá ég ein stoi'mmáfahjón, með nýfleyga unga, hér á leirunum. Foreldrarnir kölluðu sífellt á ungana, og var mjög annt um þá, og gerðu sig líklega til þess að verja þá, ef á þá hefði verið ráðizt. 5. sept. sá ég síðast sandlóur. 7. sept. sá ég tvo skúma í máfahóp hér á leirunum. 10. sept. fóru síðustu maríuerlurnar, og þá hurfu skógar- þrestir. 11. sept. fóru lóuþrælar. 13. sept. fór auðnutittlingunum að fjölga. 20. sept. hurfu síðustu spóarnir. 23. sept. álít ég að helsingjar hafi farið. 24. sept. sá ég síðast steindepil og stelka. 28. sept. sáust síðast gráendur. 3. okt. komu fyrstu snjótittlingarnir hér niður á láglendið. 5. okt. fóru síðustu hrossagaukarnir. 10. okt. fóru sendlingar að koma hér í fjörurnar, og voru um 20. okt. orðnir eins margir og mér finnst þeir vera venjulega hér á vetrum. 13. okt. sáust síðast gæsir. 15. okt. fóru síðustu lóurnar. 1937. I haust og það sem af er vetri, hefir alltaf verið dálítill strjálingur af auðnutittlingum. En um miðjan janúar fjölgaði þeim mikið, og nú sjást þeir daglega í stórhópum. Á sama tíma hefir einnig verið hér mjög mikið af hettumáfum, stundum jafn- v,el meira en af svartbak. Einnig er hér töluvert af stormmáf- um, bæði ungfugli og fullorðnum. Það, sem af er vetrar, hefir borið langmest á litla-hvítmáf. 20. jan. sá ég fjóra gráþresti í Gróðrarstöðinni, síðan bætt- ist einn og einn við, þar til 2. febrúar, að þeir voru orðnir þrett- án. 4. febr. fjölgaði þeim upp í 40—50 og 5. febr. voru þeir

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.