Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 35
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 111
iiiiiimimiiiiiimiimmiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiimmmiiiiimimiimmmiiiiiimiimmmimiiiiimiiiiiiiiiiniii
um hinn nýja, endurvakta Geysi, og starfsemi hans, hitann í
hvernum o. s. frv. Ritgerðinni fylgja tvær myndir og ein tafla.
kelsson rekur lestina með þessari grein um lagdeildar basaltsúl-
8. Þorkell Þorkelsson: Geschichtete Basaltsdulen. Þorkell Þor-
ur. Greininni fylgja fjórar myndir.
Þótt Vísindafélag íslendinga hafi frá upphafi átt við þröngan
kost að búa og eigi haft neina fasta tekjustofna, hefir því tekizt
að byggja allveglegan minnisvarða íslenzkum vísindum með út-
gáfustarfsemi sinni. Væri vel, ef það gæti farið saman framveg-
is, að sem flestir íslenzkir vísindamenn vildu láta félagið njóta
rita sinna til útgáfu, og því væri séð fyrir fé til bókaframleiðslu.
R. Sparck: The Benthonic Animal communities
of the Coastal Waters. The Zoology of Iceland,
Vol. I, Part 6. Copenhagen and Reykjavík, 1937.
Iiöfundur þessa rits, dr. R. Spársk, er nýlega orðinn prófessor
í dýrafræði við háskólann í Kaupmannahöfn. Hann hefir komið
hér til Islands og rannsakað dýralíf bæði á landi og í sjó. Aðal-
viðfangsefni hans í Danmörku hafa verið ostrurannsóknir, og er
hann þekktur um allan heim meðal sjólífsfræðinga o. fl. fyrir þær.
Auk þess hefir hann fengist mikið við rannsóknir á botndýrum, og
er þar arftaki Danans dr. Johs. Petersens, sem dó fyrir nokkrum
árum.
Þessi ritgjörð, sem að ofan greinir, er yfirlit yfir botndýralífið
í hafinu kringum ísland á grunnsævi, byggð á þeim rannsóknum,
sem gerðar hafa verið á „Dana“ og „Þór“.
Þegar litið er á botndýramagnið, eru ísafjörður og Hesteyrar-
fjörður auðugastir, þar eru að meðaltali 455 grömm af dýrum
(mest skel, sem heitir hallloka (Macoma calcaria)) á hverjum fer-
metra. Þarnæst kemur Faxaflói með 420 gr. á fermetra. Hér eru þó
einungis teknir þeir staðir, þar sem mest fannst. Ritgjörð þessi er
hin ýtarlegasta og er þar að finna árangurinn af öllum þeim rann-
sóknum, sem gerðar hafa verið á botndýramagninu við ísland.
Próf. Spárck hefir áður skrifað tvær ritgjörðir um sama efni,
einnig á ensku.
Wesenberg-Lund: Gephyrea. The Zoology of Ice-
land, Vol. II, Part 23. Copenhagen and Reykja-
vik 1937.
Hér er tekinn til meðferðar fáskrúðugur sæormaflokkur úr
hafinu kringum ísland. Tegundirnar, sem lýst er, eru aðeins 11 að