Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 101
imiimiiiiimiiimiiiiitiiiiiiiiiimiimiiiiimimmiiimiiiiimiiiiuiimmiiiiimimiiiiiiiiiiiiimiimmmmr'iiimiiiiiiiiimiiiiiiip
Fuglar séðir í Vestmannaeyjum
veturinn 1937.
(Úr bréfi frá Þorst. Einarssyni, kennara á Hóli í Vestm.eyjum.)
1) Auðnutittlingar. Sá þrjá af þeim í skrúðgarði Ól. Ó.
Lárussonar, læknis, þann 31. janúar.
2) Álftir hafa sézt hér við og við í allan vetur. Aðallega úti
í svo nefndri Klauf.
3) Álka kom inn á höfn og upp að bryggjum í janúar. Þann
25. marz gekk eg með Ofanleitishamri og sá þá stórar breiður
af eintómri álku og eins í berginu.
4) B1 e s ö n cl. Merkti eina þann 29. janúar.
5) Fálki hefir sézt hér við og við í allan vetur, í janúar og
febrúar daglega, þegar smáfuglarnir voru hér flestir.
6) Fiskiendur. Veit til þess, að þær hafa verið skotnar hér,
en ekki hvaða tegund.
7) R j úp ur komu hér við og við í desember — í norðanátt.
8) Fýll var hér allan veturinn, en fjölgaði mjög með vorinu.
9) Gæsir sáust hér í stórhópum þann 23. apríl.
10) Hegrar sáust við og við í allan vetur og stundum um lang-
an tíma, t. d. þann 18. marz.
11) Gráþrestir munu hafa komið hér í desember, eftir aust-
an ofsa-veður. Hér voru oftast aðeins einn eða tveir hjá hús-
unum, en í kálgörðunum fyrir vestan bæinn voru þeir ávallt
flestir. Eg taldi þá nokkurum sinnum þar í görðunum og
töldust mér þeir 21 í hvert sinn. Þeir hurfu um þann 4. apríl.
12) Haftyrðill sást um miðjan veturinn; fannst rekinn í jan.
13) Hávella. Heyrði sagt, að hún hefði verið hér við eyjarn-
ar í febrúar.
14) Lóa. Heyrði fyrst til hennar þann 6. apríl, en þ. 8. sá eg
hana í stórhópum og þ. 25. sá eg þann stærsta lóuhóp, sem
eg hefi nokkurn tíma séð.
15) Hrafn. Hann er hér allan veturinn. Ber minna á honum
nú um varptímann. Aðeins einn og einn sést hér á stangli.
16) Kjóar sáust hér um miðjan veturinn, en eg hefi ekki séð
þá enn hér í vor.
l?) Landsvölur. Eftir austan í'ok sást hér þ. 18. apríl ein