Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 26
102 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
i ii 111; 11111111111111111111111111111111111111111111111 i 111111111111111111111111111111 ii 1111111111111 ii 11111111111111111111: ii 111111111111111 ii 111111111111111111
landsvala. Hún sást hér þennan dag víða um eyjuna, svo eg
gæti trúað, að það hafi verið fleiri en ein á ferðinni í það
sinn. Eg sá hana og athugaði nákvæmlega í góðum sjónauka.
Dagana þar á eftir sáust landsvölur á sífelldu flugi, skjótast
á milli húsa eða þær flugu lágt yfir göturnar. Hér í austur-
hluta eyjunnar sáust að sögn 5—6 í hóp einn daginn. Þann
14. heyrði eg getið um tvær, sem sézt höfðu í kálgörðunum.
18) Kríur. Þann 13. maí sögðu sjómenn mér, að þeir hefðu
hitt kríuhóp milli lands og eyja. Fylgdu þær bátnum þar, sem
hann var á dragnótaveiðum, og tíndu í sig slógið innan úr kol-
anum. Daginn eftir, þ. 14. maí, sást ein kría hér á túnunum.
19) Langvíur. Allan veturinn, mun hafa komið inn á höfn-
ina og upp að í Janúar—febrúar.
20) Hvítmáfar. Allan veturinn hér, innan um aðra máfa.
21) Svartbakar sömuleiðis.
22) Lómar. Þeir koma hér fyrri hluta vetrar. Hafa stundum
verið skotnir hér.
23) Lundi. Hann settist upp þann 23. apríl, en hefir sézt í vet-
ur einn og einn og eftir austan ofsaveður í desember fund-
ust tveir hér og var annar þeirra lifandi. Nokkuru seinna
fann eg tvö hræ inni í Botni.
24) Maríuerla. Hún kom hér dagana 27.—28. apríl.
25) Músarrindill. Hann hefir verið hér í allan vetur, víða
um eyjuna.
26) Súla. Allan veturinn.
27) Stari. Sá 4 saman í fjörunni þ. 11. febrúar og í marzmán-
uði hélt sig einn við hænsnabú sjúkrahússins. Hann hvarf
héðan þ. 23. marz. Hann sat oft á mæninum á líkhúsinu og
söng.
28) Rita er hér allan veturinn.
29) Sandlóa kom hér í stórhópum þann 4. apríl, í blíðviðri, en
þokusúld.
30) Sendlingar hafa verið hér í allan vetur. Einnig komu
þeir sem farfuglar með sandlóunni þann 4. apríl, en sendling-
arnir, sem verið höfðu hér í stórhópum í fjörunum í allan
vetur, hurfu héðan þessa sömu daga (4. apríl), svo að segja
algerlega.
31) Silfurmáfur. Eg merkti einn þann 29. janúar ’37.
32) Sæsvölur eru hér á sumrum, en hvenær þær koma hefi
eg ekki getað athugað, þar eð þær eru mest í úteyjum (og í