Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1937, Side 32

Náttúrufræðingurinn - 1937, Side 32
108 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN íiiiiiiiimiiimmiiiiimmimimmiimiiiiimmmimiiimmiiimiiiiiiiiiiiiiii m m iiiii ii 11111111 iii]imi iiiiimiiiiiiiiiiiii iii miiiint Hver vann verkið? Steindepillinn (Oenanthe o. schöleri) er einn af smáfuglum þeim, er tíðast verpa hér heim við bæi í húsaveggjum og öðrum fylgsnum, er mannshöndin hefir búið til. Það er bæði fallegur og skemmtilegur gestur, en því miður virðist mér hann eigi eins margur nú og áður, hvað sem nú veldur því. Er honum oft veitt minni eftirtekt en skyldi — eins og raunar flestum fuglum •—, því að margt er í fari hans — og annarra fugla — óskráð og lítil eða engin vitneskja um, sem er þó þess vert að því sé haldið á lofti. Bendir atvik það, er hér verður frá sagt, sterklega í þá átt. Vor eitt sem oftar átti steindepill hreiður í heytóft á bænum Víðirhóli í Fjallahreppi í Norður-Þingeyjarsýslu. Var tóftin djúp og með bröttum veggjum. Steindepillinn ungaði nú út eggjunum þarna í tóftinni, og kom ungunum upp. Unglingur einn á heimil- inu, Ingibjörn Guðnason, fylgdist vel með í öllu þessu uppeldis- starfi fuglsins og frá honum og bróður hans, Skarphéðni, hefi eg fengið frásögnina um hið einkennilega fyrirbrigði, er nú verð- ur lýst. Einn morgun, er Ingibjörn kom í tóftina, flugu allir ungar, er hann sá, upp úr henni. Hann leit inn í hreiðrið, af gömlum vana meir en því, að hann ætti von á að sjá eitthvað þar. Sér hann þá, að í hreiðrinu kúrir einn unginn mjög dapurlegur útlits. Með mestu varfærni tók hann fuglinn og athugaði hann, og komst þá að raun um, að hann var fótbrotinn á öðrum fæti um legginn, svo að endar leggpípunnar stóðu út úr skinninu. Datt honum nú fyrst í hug, að velgerningur væri að deyða fuglinn, en þegar til kom, hafði hann eigi hörku í sér til þess. Það varð og niðurstað- an um annað heimilisfólk á Víðirhóli, enginn treystist til að leggja hendur á þennan vesaling í því skyni að svifta hann lífi; og á hinn bóginn sáu menn engin tök á að hjúkra honum að neinu leyti, nema reynt var að færa honum fæðu þá um daginn, sem hann þó gerði lítil eða engin skil. Næsta morgun, er Ingibjörn vitjaði um fuglinn, er hann kyrr í hreiðrinu. En nú hafði á þessum sólarhring gerzt það undar- lega atvik, að umvaf er komið um brotið, gert af hári, ull og fín- um jurtatægjum, svo aðdáanlega haganlegt, að langt tók fram því, er hann hafði séð eða gert sér hugmynd um. Náði umvafið

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.