Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1949, Qupperneq 10

Náttúrufræðingurinn - 1949, Qupperneq 10
152 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN að ekki þótti rétt að birta þær mælingar, þess sarnt getið, að hitastigið virtist yfirleitt lægra en þá, er engin sápa var í hvernum. Eigi virðist mér þetta koma vel heim við þá skoðun próf. Trausta Einarssonar, að sápan geri yfirhitun hveravatnsins meiri og greiði á þann hátt fyrir gosunum. En svo að ég víki aftur að þeirri yfirhitun Geysisvatnsins, sem Þorbjörn telur sig fundið hafa, þá hef ég lengi verið þeirrar skoðun- ar, að yfirhitun hveravatnsins sé sjaldgæf og lítil, og eigi sér ekki stað nema þar, sem sérstaklega stendur á. Elveraloft er að mínu áliti í öllu hveravatni, meðan það er djúpt í jörðu og undir miklum þrýstingi, og á meðan hveraloft er í vatninu að nokkru ráði, er yfir- hitun útilokuð. En er hveraloftið er komið nálægt yfirborðinu, getur svo atvikazt, að loftið verði viðskila við vatnið. Hveravatn, sem þannig hefnr misst loft sitt, getur auðvitað orðið yfirhitað, ef það liitnar á ný. Yfirliitað vatn er og í óstöðugu jafnvægi. Verði það fyrir snöggum áhrifum, breytist það hæglega í stöðugra jafnvægi með myndun gufubólna. Yfirhitað hveravatn liefir því alla jafna fundizt itelzt í yfirborðinu á kyrrlátum hverapollum og yfirhitunin eigi mælzt nema lítil, varla yfir 2°. Þótt margt fleira megi segja um þetta mál, mun ég eigi gera það nú, enda hef ég skýrt frá sumu af því annars staðar. Þegar nú því er lialdið fram, að Geysisvatnið sé yfirhitað 6° að minnsta kosti, finnst mér ástæða til að athuga, hvort eigi sé of mikið úr yfirhituninni gert. í þetta sinn fór hitamælingin fram rétt við þann stað, þar sem ég hygg, að efsta æðin liggi inn í hverapípuna, og eins og áður er lýst, myndast þar alltaf öðru hvoru stórar blöðrur af gufu og hveralofti, gufan auðvitað yfirgnæfandi. Það hygg ég, að fari santan myndun blaðranna og hækkun hitans, því að hitinn er meiri í hliðaræðinni. Meðan þessar blöðrur eru að myndast og þenja sig út í hverapípunni, þurfa þær að neyta orku til að setja vatnið á hreyfingu, er þær ýta því frá sér. Bæði vegna nún- ings og hraðaaukans vex því þrýstingurinn þarna, og þessi þrýstings- auki liækkar suðumarkið, en yfirhitunin verður að því skapi minni. Sé þetta rétt, er eigi nóg að leggja þungann af vatnshæðinni við loftþrýstinginn, heldur verður þar við að bæta þi-ýsting vegna blöðrumyndunarinnar. Þegar blaðran fellur saman vegna kælingar við vatnið, lækkar þrýstingurinn hins vegar skyndilega, og dynk- irnir, sem oft Iieyrast, myndast einkum þá. Til þess að finna yfir- hitunina þarf að mæla ekki aðeins hitann heldur líka þrýstinginn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.