Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 15

Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 15
LEYNDARDÓMUR GAUKSINS 157 saga þessi sýnir, live næma athyglisgáfu almenningur heí'ur, því að þessar tegundir eru að mörgu leyti nauðalíkar. Að ofanverðu er karlgaukurinn gráblár, en að neðan ljós með dökkum þverböndum eins og margir ránfuglar. Hjá kvengauknum er um tvílitni að ræða. Sumir fuglanna líkjast karlgauknum að lit, en aðrir eru ryðbrúnir eða jafnvel ryðrauðir. Ég læt þetta nægja um ytra útlit gauksins, enda hefur hann ekki fyrst og fremst dregið athygli almennings að sér vegna þess, heldur vegna hinnar hljómmiklu og hvellu raddar, sem hjá flestum þjóðum er orsök að hinu alþýðlega nafni hans.* Strax og gaukurinn vitjar heimkynna sinna á vorin, kveða köll lians við í sífellu frá trjárn og runnum, og þetta veldur því, að í mörgum löndum, svo sem víðast hvar í Mið-Evrópu, er litið á gaukinn sem hinn eiginlega vorboða. Ennfremur er liann, auk storksins, einhver vinsælasta fuglategundin, lofaður og prísaður í þjóðkvæðum og æfintýrum, og er auk þess enn í miklti áliti lijá sveitafólki sem töfrafugl, spáfugl, hamingjubpði og veðurspámaður. Þó eru það ekki þessir eiginleikar gauksins, sem gera hann að eftirsóknarverðu og vinsælu rannsóknarefni fyrir fuglafræðinga og Hffræðinga, heldur miklu fremur hinir einkennilegu varphættir hans og hinar margþættu spurningar og viðfangsefni, sem krefjast úrlausnar í sambandi við rannsóknir á þeim. Eins og kunnugt er, er gaukurinn varpsníkill, þ. e. hann ungar ekki út eggjum sínum sjálfur, heldur verpur þeim í ltreiður annarra fugla, sem undan- tekningarlaust eru smáspörfuglar, og lætur þá annast um útungun eggjanna og uppeldi unganna. Enda þótt þetta hátterni gauksins sé mjög frábrugðið hátterni flestra annarra fugla, sem sjálfir unga út eggjum sínum, og gaukurinn í þessu tilliti liafi nokkra sérstöðu rneðal fuglanna, er þó hins vegar sú alntenna skoðun röng, að gauk- urinn sé eini fuglinn, sem hagi sér þannig eða með öðrum orðurn sé einasti varpsníkillinn. í fyrsta lagi er það rangt að tala um gauk- inn í eintölu í þessu sambandi, því að til gaukaættarinnar, sent er vel afmörkuð fuglaætt, teljast yfir 100 tegundir, og nær útbreiðsla þeirra til allra hluta heimsins. Og langflestar þessara tegunda eru einnig varpsníklar. Þannig er t. d. önnur evrópsk gaukstegund, hinn svonefndi dílagaukur (Clamator glandarius), sem byggir Suður- Evrópu og Afríku, einnig varpsníkill, en verpur þó ekki eggjum * Hin sérkennilegu köll gauksins eru samsett af tveimur tónum, og er þá siðari tónninn um 3 hálftónum lægri en sá fyrri (kúkkúkk — kúkkúkk).

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.