Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 31

Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 31
LEYNDARDÓMUR GAUKSINS 173 mjög náinn skyldleiki sé milli allra gaukategunda og varpsníkjur sníkjugaukanna, ekki sízt Evrópugauksins, hafi ekki skapazt fyrr en á síðasta skeiði jarðsögunnar. Hver er nú lausnin í þessu máli? Hafa stökkbreytingar og náttúruval ef til vill enga þýðingu í sambandi við myndun nýrra lífsforma og lífshátta? Ég hef látið þá skoðun í ljós, að úrval náttúrunnar gefi fullnægj- andi skýringu á litaraðlögun gaukseggjanna, en það muni reynast erfitt, að skýra öll hin margþættu og flóknu aðlögunarfyrirbæri, sem við rekum okkur á í sambandi við varpsníkjur gauksins, á sama hátt. Þessum erfiðleikum er rutt úr vegi, jafnskjótt og við gerum ráð fyrir, að stökkbreytingarnar gerist ekki út í bláinn og án tak- marks, en feii hins vegar í sér ákveðna viðleitni, sem tryggi það, að auk byggingaráætlunarinnar sé einnig hinn nauðsynlegi efniviður tiltækilegur á réttum tíma. Síðan yrði það hlutverk náttúruvalsins að leggja síðustu hönd á verkið. Nú er svo komið, að bæði erfðafræðingar og þeir, sem aðhyllast þróunarkenningu Darwins, eru farnir að tala um stéttaskiptingu eða valdastiga ltjá arfberunum og sömuleiðis um arfberavaka o. s. frv. Ennfremur eru þeir farnir að gera ráð fyrir þeim möguleika, að mjög flókið hvatafyrirbrigði, eins og tilhneiging gauksungans til að varpa fóstursystkinum sínurn út úr hreiðrinu, geti myndazt við eina stökkbreytingu. Allt jretta bendir til þess, að þeir, hvort sem þeir viðurkenná það eða ekki, hafi með því yfirgefið grundvöll hins vél- ræna viðhorfs. Enda þótt í fljótu bragði megi virðast svo, sem mynd hins lífræna heims verði skýrð á fullnægjandi hátt út frá samstarfi stökkbreytinga og náttúruvals, fer þó ekki hjá því, að sá sem skyggn- ist dýpra, skynji bak við þessi fyrirbæri starfsemi allsráðandi upp- hafsafla, sem skapa, móta og stýra öllu sem lifir, án þess í eðli sínu að ganga upp í því. Áheyrendur góðir, ég hef lokið erindi mínu og það myndi gleðja mig, ef mér hefði tekizt að sýna ykkur á Jressari stuttu kvöldstund, hvernig einn einstakur einkennilegur fugl hefur í sambandi við hugleiðingar okkar getað leitt okkur að þeim þekkingartakmörkum, sem mannleg vi/.ka og skilningur fær ekki fleytt okkur yfir. Það er um Jressi takmörk, sem Johann Wolfgang von Goetlie hefur látið sér um munn fara eftirfarandi hógværu en um leið örvandi orð, ,,að halda áfram að rannsaka Jjað, sem rannsóknum verður beitt við, og virða og bera lotningu fyrir hinu órannsakanlega“.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.