Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 37

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 37
NÝR HELLIR í HEKLUHRAUNl 179 glatt, er honum var kippt upp úr, var auðvelt að slökkva logann með því að sveifla stafnum snöggt í kringum sig. Lakkið á honum brann að vísu fljótlega upp, og viðurinn sviðnaði, en brann furðu lítið, og á ég enn stafinn. Efst í vökinni, þar sem glóðin var björtust, veitti kvikan stafnum lítið viðnám. Það virtist ívið meira næst yfirborði en þegar dýpra kom í kvikuna, líkt og efst lægi um 10 cm þykkur börkur nokkru seigari en undirlagið. Eftir að heim kom úr þessari ferð og ég hafði prófað að ýta sama stafnum í svipuðum stellingum á skál búrvog- arinnar, gizkaði ég á, að um 4 kg kraft (að með talinni þyngd stafs- ins) hefði þurft til að reka stafinn niður úr þessurn berki. Hvorki fyrr né síðar í Heklugosinu hef ég hitt á svo lina hraun- kviku sem í þetta skipti. Fyrstu rnánuði gossins var fátítt, að rnanni tækist að reka járntein 10—20 cm inn í glóandi hraun með því að neyta allra krafta sinna. En þetta tók að breytast um haustið 1947, og eftir það mátti oft með litlu átaki reka staf niður í kvikuna, og hitinn einn og eldurinn, sem læsti sig í stafinn, settu því takmörk, hve djúpt honum varð komið. Þessi breyting stafaði að nokkru leyti af því, að hraunið rann dreifðara, þegar á leið, svo að meira varð um litla rennandi ála og vakir, sem komast mátti fast að, en eflaust einnig af hinu, að hraunið varð heitara, enda glóðin sýnu skærri, þegar kom fram á liaust. Áður en ég byrjaði að þreifa fyrir mér með stafnum í þessari vök, sem var aðeins um 80 cm breið, gerði ég mér helzt í hugarlund, að þarna rynni aðeins lítill kvikulækur og varla dýpri en svo, að ég gæti hæglega rnælt þversneið af honum með stafnum mínum. En þetta fór á aðra leið. Ég fann hvergi botn, ]ró að ég ræki stafinn allt að 55 cm niður, ekki heldur þótt ég ræki hann lóðrétt niður fast við skörina. Dýpra kom ég honum ekki, eins og fyrr segir, vegna þess, live hann logaði glatt. Þessar stungur sýndu, að snardýpi mikið var við skörina, ef til vill holbekkt. Nokkrum sinnum sleppti ég stafnum niðri í kvikunni, eins og ég kom honum dýpst, og lét hann berast örstutta stund lausan með straumnum. Þetta gerði ég til að athuga, hvort straumhraðinn ykist eða minnkaði með dýpinu. Ef hann ykist, átti stafurinn að liallast aftur á bak, en ef hann minnkaði, áfram. En hvorugt varð, stafurinn skekktist ekki, svo að séð yrði. Að vísu var sá tími, sem ég gat sleppt af stafnum lielzt til stuttur, til að fullt mark sé takandi á þessari tilraun. En samt gefur hún í skyn, að sti'aumhraði hafi verið svip-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.